Security News

Cybersecurity news aggregator

CRITICAL Attacks RÚV

Bræður handteknir í tengslum við sprengingu við sendiráð Bandaríkjanna í Ósló

A homemade explosive device was detonated outside the U.S. Embassy in Oslo, causing minor property damage. Three Norwegian-Iraqi brothers have been arrested as suspects, with one believed to be the primary perpetrator and the others as accomplices. Authorities are investigating the motive, including whether the attack was state-sponsored or linked to the current international situation.
Read Full Article →

Þrír bræður, allir á þrítugsaldri, hafa verið handteknir vegna gruns um að hafa sprengt sprengju við bandaríska sendiráðið í Ósló aðfaranótt sunnudags. Samkvæmt Óslóarlögreglunni eru bræðurnir allir norskir ríkisborgarar sem eiga ættir að rekja til Íraks og eru allir þrír búsettir í höfuðborginni. Þeir hafa ekki áður komið við sögu lögreglu. Minni háttar skemmdir urðu á húsnæði sendiráðsins en engan sakaði við sprenginguna. Rannsókn lögreglu bendi til þess að sprengjan hafi verið heimatilbúin. Lögreglunni hefur borist talsvert magn myndefnis eftir sprenginguna. Óslóarlögreglan birti á mánudag mynd af manni úr eftirlitsmyndavél sem grunaður var um að hafa komið sprengjunni fyrir. Grunar lögreglu að það sé einn bræðranna en hinir tveir hafi aðstoðað. Christian Hatlo saksóknari segir í samtali við NRK að lögreglan rannsaki nú ástæðu glæpsins, eins sé til skoðunar hvort fleiri kunni að vera viðriðnir málið. Hann bendir á að skotmarkið hafi verið bandarískt og vísar til núverandi heimsástands. „Við vinnum með nokkrar tilgátur. Ein þeirra er hvort þetta hafi verið gert fyrir hönd ríkisaðila,“ segir Hatlo.

Share this article