Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Ein tilgáta að sprengingin við sendiráðið hafi verið hryðjuverk

The article describes a physical explosive attack targeting the U.S. embassy in Oslo, which authorities are investigating as a potential act of terrorism. The attack caused minor damage but no injuries, and Norwegian security services are leading the investigation while increasing security measures in the city. No technical vulnerability, CVSS score, affected software versions, patch, or workaround is discussed in the provided news report.
Read Full Article →

Talið er að sprengingin við bandaríska sendiráðið í Ósló í nótt hafi verið skipulögð aðgerð og eitt af því sem er til rannsóknar er hvort það tengist hryðjuverkum. Aðrir möguleikar eru einnig í stöðunni. Enginn er í haldi. Þetta er meðal þess sem kom fram á blaðamannafundi norsku lögreglunnar skömmu fyrir hádegi. Tilkynnt var um sprenginguna laust fyrir klukkan eitt að staðartíma í nótt. Minniháttar skemmdir urðu, en engan sakaði. Rætt var við vitni framan af nóttu og eins eða fleiri grunaðra leitað. Ítarleg leit í næsta nágrenni sendiráðsins benti ekki til að frekari hætta væri á ferðum. Vitni segja sprenginguna hafa verið mjög öfluga. Norska öryggislögreglan vinnur með lögreglu að rannsókninni og hyggjast yfirvöld auka öryggisgæslu í borginni eftir sprenginguna. Sendiráð Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum hafa verið í viðbragðsstöðu vegna hernaðaraðgerða Bandaríkjanna í Íran og nokkur þeirra hafa orðið fyrir árásum. Óslóarlögreglan gaf ekki í skyn í morgun að sprengingin tengist hernaði Bandaríkjanna.

Share this article