Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH News RÚV

Hávær sprenging við bandaríska sendiráðið í Ósló

This article describes a physical explosive attack targeting the U.S. Embassy in Oslo, Norway, resulting in minor injuries. The attack vector involved detonating a powerful explosive device at the embassy's entrance. No technical vulnerability, CVSS score, affected software versions, patches, or workarounds are provided in the article.
Read Full Article →

Noregur Hávær sprenging við bandaríska sendiráðið í Ósló Fólk hlaut minni háttar meiðsli þegar öflug sprenging varð við bandaríska sendiráðið í Ósló í nótt. Tilkynning barst um klukkan eitt að staðartíma. Lögregla hefur mikinn viðbúnað og segir frumrannsókn munu taka nokkra klukkutíma. Markús Þ. Þórhallsson 8. mars 2026 kl. 01:26, uppfært kl. 01:54 A A A Lögregla hefur mikinn viðbúnað við sendiráðið. Vicky Schaubert / NRK Öflug sprenging varð við innganginn að bandaríska sendiráðinu í norsku höfuðborginni Ósló laust fyrir klukkan eitt að staðartíma í nótt. Michael Delmer, viðbragðsstjóri hjá Oslóarlögreglunni, segir í samtali við NRK að starfsfólk hafi hlotið minni háttar áverka en vill ekki tíunda það frekar að svo stöddu. Hann vill heldur ekkert segja um hvers konar sprengiefni var notað, enda sé rannsóknin skammt á veg komin. „Við þurfum að átta okkur betur á málsatvikum áður en við látum meira frá okkur fara,“ segir Delmer og bætir við að rannsóknin taki margar klukkustundir. Búast megi við fréttatilkynningu þegar meira liggur fyrir. Delmer segir að ræða við vitni og leita að þeim sem verknaðinn frömdu. Ítarleg leit í næsta nágrenni sendiráðsins bendi ekki til að frekari hætta sé á ferðum. Hann vill heldur ekki tjá sig um hvort öryggismálum sendiráðsins sé ábótavant í ljósi þess að einhverjum tókst að koma sprengju fyrir við inngang þess. Lögregla og sendiráðsstarfsfólk eigi í góðum samskiptum. Götunni þar sem sendiráðið stendur hefur verið lokað og Delmer kveðst ekki geta svarað hve lengi það standi. Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum viðbragðsstjóra Óslóarlögreglunnar. Sendiráð Bandaríkjanna Sprenging lögregla Ósló Meira frá RÚV Veður Hálka víða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og annars staðar á land­inu Atvinnulíf Of mikið sé gert úr sterkri stöðu Ís­lands Stríð í Mið-Austurlöndum Banda­ríkja­for­seti segir Írani bera ábyrgð á mann­skæðri árás á stúlkna­skóla Danmörk Eig­andi Noma sak­að­ur um of­beldi gegn starfs­fólki árum saman Fótbolti Ch­el­s­ea slapp með skrekk­inn gegn Holly­woodlið­inu Nepal Rapp­ari vinnur sögu­leg­an sigur í þing­kosn­ing­um í Nepal Sjávarútvegur Grá­slepp­an um­deild hvort sem er í kvóta eða ekki Innrás í Úkraínu Tólf drepin í árásum Rússa á Úkra­ínu Stríð í Mið-Austurlöndum „Dag­legt líf hélt ein­hvern veginn áfram“ Mest lesið á RÚV.is 1 Stríð í Mið-Austurlöndum Trump: „Íran verður veitt bylm­ings­högg í dag“ 2 Samgöngur Flug­um­ferð úr skorð­um á Kefla­vík­ur­flug­velli vegna veðurs 3 Ríkisútvarpið „Góðir Ís­lend­ing­ar“ – Hildur Vala stýrir nýjum skemmti­þætti á RÚV 4 Stjórnmál „Við erum ekki að fara í málþóf í þessu máli“ 5 Dalabyggð Borga fyrir ull sem annars er metin sem verð­laus 6 Atvinnulíf Of mikið sé gert úr sterkri stöðu Ís­lands Fleiri erlendar fréttir Stríð í Mið-Austurlöndum Banda­ríkja­for­seti segir Írani bera ábyrgð á mann­skæðri árás á stúlkna­skóla Stríð í Mið-Austurlöndum Bretar heim­ila Banda­ríkja­mönn­um notkun her­stöðva í varn­ar­skyni Danmörk Eig­andi Noma sak­að­ur um of­beldi gegn starfs­fólki árum saman Innrás í Úkraínu Tólf drepin í árásum Rússa á Úkra­ínu Nepal Rapp­ari vinnur sögu­leg­an sigur í þing­kosn­ing­um í Nepal Bandaríkin Stofn­uðu nýtt banda­lag til að berj­ast gegn fíkni­efna­brot­um Bretland Al­ræmd­ur morð­ingi drep­inn í bresku fang­elsi Bandaríkin Átta látnir af völdum ský­stróka í Banda­ríkj­un­um Aðrir eru að lesa núna 1 Danmörk Eig­andi Noma sak­að­ur um of­beldi gegn starfs­fólki árum saman 2 Atvinnulíf Of mikið sé gert úr sterkri stöðu Ís­lands 3 Ríkisútvarpið „Góðir Ís­lend­ing­ar“ – Hildur Vala stýrir nýjum skemmti­þætti á RÚV 4 Stríð í Mið-Austurlöndum „Dag­legt líf hélt ein­hvern veginn áfram“ 5 Stríð í Mið-Austurlöndum Trump: „Íran verður veitt bylm­ings­högg í dag“ 6 Sveitarstjórnarkosningar 2026 Úti­lok­ar sam­starf við Sam­fylk­ing­una – „Það er full­reynt“

Share this article