Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

110 ára barátta fyrir jöfnuði og frelsi

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 12.3.2026 | 8:00 110 ára barátta fyrir jöfnuði og frelsi Jóhann Páll Jóhannsson Karítas Sveina Guðjónsdóttir Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Í dag eru 110 ár frá stofnun Alþýðusambands Íslands og Alþýðuflokksins. Stofnendur voru sjö félög í Reykjavík og Hafnarfirði, þar af eitt félag verkakvenna. Við skulum rifja upp við hvernig aðstæður alþýðufólk bjó árið 1916. Fátækralögin svonefndu voru í gildi og fólki bókstaflega refsað fyrir að vera fátækt. Sá sem þurfti fjárstuðning frá hinu opinbera missti nær öll borgaraleg réttindi og gat átt von á því að vera fluttur nauðugur milli landshluta. Fjölskyldum var sundrað og lögregla látin vakta hús og elta uppi þau sem flytja átti nauðungarflutningum. Allir sem þegið höfðu fjárhagsaðstoð frá sveitarfélögum voru útilokaðir frá því að kjósa í bæjarstjórnarkosningum. Aðeins karlar 25 ára og eldri og konur 40 ára og eldri gátu kosið. Verkafólk þurfti að strita myrkranna á milli til að geta framfleytt sér. Félagsleg undirboð voru ekki undantekning heldur regla. Engar alvörutryggingar voru til staðar gegn fátækt af völdum veikinda, aldurs, örorku eða atvinnuleysis, svo fólk lifði í eilífum ótta um afkomu sína. Það kom í hlut verkalýðshreyfingarinnar og jafnaðarmanna að berja fram nýja og betri samfélagsgerð í þágu fjöldans. Og þegar vinnandi fólk kom saman og skipulagði sig, bæði á Íslandi og í löndunum í kringum okkur, vannst hver sigurinn á fætur öðrum. Verkamannabústaðir voru reistir og rétturinn til hvíldar og frítíma tryggður, almanna- og atvinnuleysistryggingum var komið á fót, fæðingarorlof og leikskólar komu til sögunnar og svona mætti áfram telja. Ríkisvaldið tók smám saman stakkaskiptum og varð að verkfæri til þess að umbreyta lífi venjulegs fólks til hins betra. Og eftir því sem leið á 20. öldina var mýtan um að aukinn jöfnuður dragi óhjákvæmilega kraftinn úr hagkerfinu og geri alla fátækari afsönnuð mjög rækilega, ekki síst í þeim samfélögum Vestur-Evrópu þar sem viðurkennt var með afgerandi hætti að verðmætasköpun er samvinnuverkefni launafólks, atvinnurekenda og hins opinbera. Baráttunni sem formgerðist með stofnun Alþýðusambandsins og Alþýðuflokksins er hvergi nærri lokið. Þetta er kjarabarátta en líka barátta fyrir frelsi og lýðræði. Víðast hvar var almennur kosningaréttur afsprengi harkalegrar verkalýðsbaráttu og sögulega hefur það verið verkefni jafnaðarmanna og verkalýðshreyfinga í Evrópu að útvíkka og verja almenn lýðréttindi. Flest af þeim félagslegu réttindamálum og framfaraskrefum sem kunna að virðast hversdagsleg lífsgæði í dag voru hápólitísk og kostuðu harðvítug átök við ráðandi stéttir. Það mun líka kosta átök að viðhalda þessum réttindum og styrkja þau enn frekar. Þar verður samtakamátturinn sem fyrr sterkasta vopnið. Til hamingju með daginn ASÍ, Samfylking og allt launafólk á Íslandi. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og þingmaður Samfylkingarinnar, jafnaðarflokks Íslands. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Vertíð gæti skilað 30 milljörðum 110 ára barátta fyrir jöfnuði og frelsi Inga Lind: „Með þér er lífið yndislegt“ Dásamlegt hjá lítilli fjölskyldu í Edinborg Vegir á óvissustigi vegna snjóflóðahættu Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB 110 ára barátta fyrir jöfnuði og frelsi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vatnsból í hættumat Dómar Landsréttar í hryðjuverkamálinu ómerktir Virða ber eignarrétt landeigenda Löng bið eftir tíma hjá heimilislækni Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Þorkell Jóelsson Borga ekki umferðarsektir Andlát: Felix Ólafsson Ingibjörg þakkar fyrir sig Vatnsból í hættumat „Ósatt, bara lygar“ Frekara niðurrif fram undan og uppbygging í sumar Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Norðanhríðaveður og gular viðvaranir Löng bið eftir tíma hjá heimilislækni Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Segist saklaus Andlát: Þorkell Jóelsson Ósamstiga um nægan meirihluta Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Ingibjörg þakkar fyrir sig Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Andlát: Árni Árnason Nýjast á mbl.is » Vertíð gæti skilað 30 milljörðum 110 ára barátta fyrir jöfnuði og frelsi Inga Lind: „Með þér er lífið yndislegt“ Dásamlegt hjá lítilli fjölskyldu í Edinborg Vegir á óvissustigi vegna snjóflóðahættu Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB 110 ára barátta fyrir jöfnuði og frelsi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Virða ber eignarrétt landeigenda „Hefði verið fínt að ljúka þessu máli“ Vara við árásum á hafnir við Hormússund Segja víðtækar árásir hafnar Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Þorkell Jóelsson Borga ekki umferðarsektir Andlát: Felix Ólafsson Ingibjörg þakkar fyrir sig Vatnsból í hættumat „Ósatt, bara lygar“ Frekara niðurrif fram undan og uppbygging í sumar Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Norðanhríðaveður og gular viðvaranir Löng bið eftir tíma hjá heimilislækni Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Segist saklaus Andlát: Þorkell Jóelsson Ósamstiga um nægan meirihluta Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Ingibjörg þakkar fyrir sig Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Andlát: Árni Árnason

Share this article