Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Taldi sæmilega yfirvegun mögulega

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 1.3.2026 | 16:30 Taldi sæmilega yfirvegun mögulega Viðskiptavinir að ná sér í bjór í ÁTVR hinn 1. mars 1989. mbl.is/Árni Sæberg Kristján Jónsson [email protected] Setja bókamerki Í dag, 1. mars, er bjórdagurinn svokallaði. Fyrir marga Íslendinga er sá dagur táknrænn fyrir sigur einstaklingsfrelsisins í einni orrustunni við forræðishyggjuna. Hvort annar hvor hópurinn hafi unnið stríðið á Íslandi er hins vegar álitamál en 1. mars 1989 var áratugalöngu bjórbanni aflétt á Íslandi. Sú staðreynd er auðvitað vel þekkt en í þessari umfjöllun er rifjað upp að fyrir tæpum fjórum áratugum lenti ungur íslenskur háskólanemi í hringiðu stormsins sem skapaðist vegna deilna um hvort leyfa ætti Íslendingum að kaupa bjór hér á eyjunni. Námsmaðurinn hafði tekið bjórbannið fyrir í meistaraverkefni í félagsfræði í bandarískum háskóla. Þar vestanhafs þóttu áherslurnar í áfengismálum á Íslandi vera nógu áhugaverðar til þess að ritgerðin birtist í virtu fagtímariti í Bandaríkjunum, Law and Society Review . Í framhaldinu tók Morgunblaðið viðtal við námsmanninn unga og birti hinn 20. ágúst árið 1986. Fór hann ekki varhluta af hitanum í umræðunni og ef til vill var hann bláeygur á þeim tíma. Í dag er námsmaðurinn ungi vel kynntur, dr. Helgi Gunnlaugsson, prófessor í afbrotafræði við Háskóla Íslands. Þjóðviljinn brást fljótt við „Fá deilumál voru eins heit á Íslandi á 20. öldinni og bjórbannið sáluga, frá 1915 til 1989, einkum síðustu ár bannsins. Morgunblaðið tók viðtal við mig 1986 þegar út kom fagtímaritsgrein í BNA um meistararannsóknina mína um bjórbannið. Þar lýsti ég helstu niðurstöðum rannsóknarinnar sem unnin var við Missouri-háskóla. Sagði þá bannið vera tákngerving gamla Íslands og valdakerfis á Alþingi sem endurspeglaði meira sjónarmið dreifbýlis á kostnað þéttbýlis. Kannski var engin furða að margir skyldu reka upp ramakvein,“ segir Helgi í léttum dúr þegar hann rifjar þetta upp en hann hafði haldið til Missouri í meistaranám sumarið 1982. Viðbrögðin létu ekki á sér standa. „Þjóðviljinn gagnrýndi viðtalið strax daginn eftir. Hátíðarhöld vegna 200 ára afmælis Reykjavíkur hinn 18. ágúst 1986 höfðu verið haldin með glæsibrag í miðri viku. Ef bjórinn hefði verið leyfður hefði allt annað verið upp á teningnum á afmæli borgarinnar samkvæmt greininni í Þjóðviljanum, drykkjulæti, stjórnleysi og annað vesen. Við ættum því að þakka fyrir bjórleysið. Ég man líka að áfengisvarnarráð fann viðtalinu flest til foráttu með grein stuttu síðar í Morgunblaðinu þar sem niðurstöðum sem fram komu í viðtalinu var mótmælt.“ Leiðari Blaðsíða 4 í Þjóðviljanum hinn 21. ágúst árið 1986. Var varla til bar á Íslandi Meistaraverkefnið og tímaritsgreinin þoldu vel akademíska gagnrýni miðað við umsagnir í Bandaríkjunum. Helgi minnist þess til að mynda að kennari hans í Missouri-háskóla var afar stoltur af því að verkefni nemanda hans skyldi ná inn í fagtímaritið. En voru sjónarmið Helga þá algerlega einhliða í viðtalinu í Morgunblaðinu? „Einhverjum fannst það vafalítið. Í viðtalinu kom ég inn á rökstuðning andstæðinga bjórs og bjórsinna áratugina á undan. Þetta er spurning sem alltaf kemur upp þegar minnst er á bjórbannið við kollega erlendis og spurning sem ég leitaði svara við í meistararannsókninni. Í henni greindi ég þingumræður, tók viðtöl og greindi skrif í blöðunum um bannið. Andstaða við bjórinn kom einna helst úr Framsóknarflokknum og verkalýðsflokkunum. Stuðningur við bjórinn tengdist meira Sjálfstæðisflokknum en þingmenn þaðan sýndu mest frumkvæði á Alþingi til afnáms bannsins. Átakalínurnar voru samt aldrei svarthvítar og urðu grárri undir lokin,“ segir Helgi og minnist fullyrðingar þingmanns í tveggja manna tali. „Einn þingmaður úr Framsókn sagði við mig að ef hann hefði stutt afnám banns hefði hann verið rekinn úr þingflokknum! Bannið var talið vernda ungt fólk fyrir áfengi, ef bjórinn væri leyfður myndi drykkja hefjast fyrr og skapa meiri vanda, verkafólk væri einnig í meiri hættu en aðrir þjóðfélagshópar og drykkja myndi aukast á vinnustöðum. Heildarneysla áfengis myndi vaxa og bætast við sterka vínið. Bjórsinnar töldu tilkomu bjórsins aftur á móti bæta drykkjusiðina, sterka áfengið myndi víkja og veikari tegundir eins og bjór taka meira við.“ Helgi bendir á að íslenskt þjóðfélag sé nú miklu líkara því sem þekkist á meginlandinu. „Hvað gerðist svo eftir afnám bannsins? Bjórinn hefur ekki reynst sérstök ógn við ungmenni né verkafólk en neysla áfengis hefur samt aukist mjög og orðið meiri hluti af hversdagslífinu en áður eins og bjórandstæðingar óttuðust. Léttari tegundir áfengis hafa orðið meira áberandi og dregið hefur úr hlut sterkra drykkja, einnig fyrir tilstuðlan verðstýringar. Íslenskt samfélag hefur gerbreyst. Meiri frítími, aukinn kaupmáttur, tíðari ferðalög Íslendinga erlendis og ferðamanna hingað. Fjöldi áfengisbúða hefur margfaldast og vínveitingaleyfi skipta nú þúsundum en varla var til bar á Íslandi þegar bjórbannið var. Erlend menning er komin í meiri mæli til Íslands. Fleira en bjórinn býr að baki aukinni áfengisneyslu, eins og breytt samfélag og aukið aðgengi. Áfengisvandinn er enn til staðar sem fyrr en hvort hann sé meiri eða minni er meira álitamál. Önnur fíkniefni hafa komið inn með meira afli en áður og vímuefnavandinn er orðinn flóknari. Með afnámi bjórbannsins 1989 má segja að Ísland hafi líkst meira nágrannaþjóðum sínum í Vestur-Evrópu en áður með öllum þeim kostum og göllum sem því fylgir. Vandi fylgir vegsemd hverri, hvort sem bjór er til staðar eða ekki.“ Viðtalið Blaðsíða 19 í Morgunblaðinu hinn 20. ágúst árið 1986. Hafði verið varaður við Hvernig varð þér við þegar þú fannst fyrir viðbrögðunum eftir viðtalið í Morgunblaðinu? „Mér varð satt að segja bilt við, því ég taldi einfaldlega að hægt væri að ræða þetta mál af sæmilegri yfirvegun. Ég hugsaði til orða míns gamla prófessors í HÍ sem hafði varað mig við að rannsaka málið. Kannski hefði ég átt að taka fyrir efni sem ekki var svona viðkvæmt eins og hann lagði til. Hann sagði þetta vera allt of viðkvæmt fyrir ungan fræðimann á Íslandi,“ rifjar Helgi upp og áhyggjur kennarans voru á þá leið að Helgi myndi strax fá á sig stimpil sem yrði honum fjötur um fót sem fræðimanni. „Ég fór að velta fyrir mér hvort málið myndi fylgja mér og koma í veg fyrir frama minn í íslensku samfélagi. Yrði litið á mig sem manninn sem vildi bara fá sinn bjór og hirðir ekki um aðra? Allt þetta fékk ég að heyra en einna yfirgengilegast fannst mér ásakanir um að ég hlyti að vera á styrk frá bjórfyrirtækjum. Bjórframleiðandinn Anheuser Busch er með höfuðstöðvar í St. Louis, skammt frá háskólanum. Að málefnið sjálft væri áhugavert frá fræðilegu sjónarhorni var því tortryggt og dregið í efa. Það hjálpaði mér í þessum mótvindi að ég fór strax utan til náms eftir stutt frí á Íslandi. Ég tók til óspilltra málanna í doktorsnámi mínu í afbrotafræði við Missouri-háskóla. Sem betur fer fennti því fljótt yfir lætin á Íslandi en nú 40 árum seinna er áhugavert að hugsa til baka,“ segir Helgi en bendir á að Bandaríkjamönnum hafi þótt staðan vera forvitnileg. „Í skólanum í Missouri þótti bjórbannið aftur á móti stórmerkilegt. Að land í Vestur-Evrópu skyldi banna veikasta stig áfengis og leyfa sterkt áfengi væri ekki rökrétt og varla skynsamlegt. Hvað er þarna í gangi? spurðu kennarar og samnemendur. Verkefni mitt fólst í að svara spurningum af þessu tagi í MA-ritgerðinni og setja í samhengi við áfengisbannið í BNA fyrr á öldinni og í öðrum ríkjum.“ Helgi Gunnlaugsson Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Arsenal - Chelsea, staðan er 1:0 Tvær breytingar á íslenska hópnum SR sigraði SA í framlengdum leik í dag - Úrslitaleikur um deildarmeistaratitilinn í kvöld Taldi sæmilega yfirvegun mögulega Skaut tvo til bana í mögulegri hryðjuverkaárás Umræðan Vinna, vöxtur, velferð Nýlegar umferðarspár – Samanburður við eldri spár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni Seðlabankinn gerir alvarlegar athugasemdir Bandaríkin og Ísrael gera árás á Íran 21 milljarðs gjaldþrot Play Mest lesið Í gær Í vikunni Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Skipti um kyn í miðju matarboði Vara við stórhríð á morgun Appelsínugul viðvörun gefin út Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Myndir: Sandurinn við Reynisfjöru gengur til baka Óvæntar vinsældir í netheimum Hraðvagnakerfi hagkvæmari kostur Halldór Laxness og nautnalyfið bjór Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Mikil endurnýjun hjá Sjálfstæðisflokknum „Þetta er grafalvarleg staða“ Umdeild pálmaolía í Bertolli Íslendingar beðnir um að láta vita af sér Gylfi Þór leiðir Viðreisn í Mosfellsbæ 233 milljónir í starfslokasamninga Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Ný

Share this article