Innlent | Morgunblaðið | 2.4.2026 | 7:25 Biðlistinn bara lengist og lengist Morgunblaðið/Eyþór Setja bókamerki Grafalvarleg staða er að myndast varðandi stöðu talmeinafræðinga á Íslandi og er uppi ótti innan stéttarinnar um að biðlistar barna sem þurfa á þeirra þjónustu að halda, og telur um 5.000 börn í dag, muni lengjast enn frekar. Á dögunum tilkynnti Talþjálfun Vesturlands að eftir tíu ára starf yrði starfsemi stofunnar hætt. Í tilkynningu frá stofunni segir að þau kjör sem Sjúkratryggingar Íslands, SÍ, bjóði sjálfstætt starfandi talmeinafræðingum séu með öllu ótæk. Í samtali við Morgunblaðið segir Bryndís Guðmundsdóttir, formaður Félags talmeinafræðinga á Íslandi (FTÍ), að um einu stofuna á Vesturlandi sé að ræða sem þarna sé að hætta. Þá sé vandinn einnig að blossa upp á höfuðborgarsvæðinu. Viðræður ekkert gengið Hún segir vandann eiga sér langan aðdraganda. Síðasti samningur á milli SÍ og talmeinafræðinga hafi verið undirritaður árið 2017 og samningaviðræður um nýjan samning ekkert gengið. Þess í stað sé samningurinn framlengdur um mánuð í senn. Þá segir Bryndís aukinheldur að það tilboð sem sé á borði talmeinafræðinga núna sé á pari við kaupmátt frá árinu 2018. Þá hafi talmeinafræðingum verið neitað um að launahluti einingaverðs þeirra fylgi launavísitölum eins og samið hefur verið um við aðrar stéttir í heilbrigðisgeiranum. „Málið er að leigan hækkar og öll útgjöld hækka á stofunum en kaupmáttur einingaverðs hækkar ekki þannig að fólk hefur ekki efni á því, í fyrsta lagi, að vinna í 100% starfi og í öðru lagi hefur það bara ekki efni á að reka stofurnar vegna þess að það fær svo lítið greitt fyrir vinnu sína.“ Biðlistinn lengist og lengist Bryndís bendir á að nýlega hafi heilbrigðisráðuneytið kynnt fyrirhugaða aðgerðaáætlun sem eigi að bæta þjónustu talmeinafræðinga við börn og segir hún að nú séu um 5.000 börn sem þurfa á þjónustu að halda á biðlista. Í því samhengi nefnir hún að vandann sem upp hefur blossað á Vesturlandi sé nú einnig að finna annars staðar. „Það eru fjórir talmeinafræðingar sem voru að starfa í Kópavoginum sem eru komnir á aldur og enginn vill taka við. Þannig að biðlistinn bara lengist og lengist og lengist. Þetta eru 7-8 talmeinafræðingar sem ég veit um sem eru að hætta, t.d. ein sem var að vinna með fólki sem er með parkinsons-sjúkdóminn. Hún er að hætta og enginn að taka við.“ Ráðherra upplýstur Aðspurð segir Bryndís pattstöðu í viðræðum SÍ og talmeinafræðinga. Þá hafi verið gengið á fund Ölmu Möller heilbrigðisráðherra til að gera henni grein fyrir vandanum, sem var þó áður en stofan á Vesturlandi tilkynnti um lokum sína. Þá nefnir hún að talmeinafræðingar geti vissulega unnið sjálfstætt og ekki undir samningi SÍ en að þá þurfi foreldrar að borga fyrir tímana sem þýði að þeir sem ekki hafa efni á þeim fái ekki þjónustu. „Það sem menn hræðast einna mest er að biðlistinn muni bara lengjast um kannski 1.000 börn á hvern ársfjórðung.“ Bryndís Guðmundsdóttir Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Spakur en urraði þegar að var komið Biðlistinn bara lengist og lengist Margir féllu fyrir aprílgabbi: Enginn afsláttur hjá Skattinum Eldsneytisbirgðir í 45 daga Einn við Hæstarétt og tveir við Landsrétt bíða lausnar Umræðan ESB-vegferðin hefst – tíu atkvæði keypt Er til annað líf? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir forseta Írans vilja vopnahlé Minnst 7-8 þúsund manns eru á biðlista Gular viðvaranir vegna hríðar og storms Á leið úr íslenskri landhelgi eftir bilun í nótt Mest lesið Í gær Í vikunni Gerandinn kom í gegn á miðilsfundi Aprílgabb Moggans efni í þjóðfræðigrein 126 milljóna kostnaður við opnun sendiráðsins Gular viðvaranir taka gildi í kvöld Löðrungar reyndust dýrkeyptir fyrir Dalvíkurbyggð Skjálfti suður af Skálafelli fannst í byggð Svona verður veðrið um páskana Niðurfelling kílómetragjalds fær Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Fimm fá 10 milljónir Niðurfelling kílómetragjalds fær Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Verðhækkanir á íslenskum pylsum vekja heimsathygli Gular viðvaranir vegna hríðar og storms Þúsundir fyrrum nemenda fengið rukkun Hundleiðinlegt að standa í þessu Enn ein lægðin á leiðinni „Eins og maður sé í stúdíóíbúð“ Gleði á Landspítala eftir vandræðalegheit Minnst 7-8 þúsund manns eru á biðlista Fylgstu með lægðinni ganga yfir Niðurfelling kílómetragjalds fær Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Hópur ferðamanna setti allt í vasana Rukka fyrir vanskráningu á morgun „Skynja rosalega mikla reiði“ Nýjast á mbl.is » Spakur en urraði þegar að var komið Biðlistinn bara lengist og lengist Margir féllu fyrir aprílgabbi: Enginn afsláttur hjá Skattinum Eldsneytisbirgðir í 45 daga Einn við Hæstarétt og tveir við Landsrétt bíða lausnar Umræðan ESB-vegferðin hefst – tíu atkvæði keypt Er til annað líf? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þöggunartilburðir aðgerðasinna þekkt stef Á leið úr íslenskri landhelgi eftir bilun í nótt Gular viðvaranir vegna hríðar og storms Minnst 7-8 þúsund manns eru á biðlista Mest lesið Í gær Í vikunni Gerandinn kom í gegn á miðilsfundi Aprílgabb Moggans efni í þjóðfræðigrein 126 milljóna kostnaður við opnun sendiráðsins Gular viðvaranir taka gildi í kvöld Löðrungar reyndust dýrkeyptir fyrir Dalvíkurbyggð Skjálfti suður af Skálafelli fannst í byggð Svona verður veðrið um páskana Niðurfelling kílómetragjalds fær Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Fimm fá 10 milljónir Niðurfelling kílómetragjalds fær Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Verðhækkanir á íslenskum pylsum vekja heimsathygli Gular viðvaranir vegna hríðar og storms Þúsundir fyrrum nemenda fengið rukkun Hundleiðinlegt að standa í þessu Enn ein lægðin á leiðinni „Eins og maður sé í stúdíóíbúð“ Gleði á Landspítala eftir vandræðalegheit Minnst 7-8 þúsund manns eru á biðlista Fylgstu með lægðinni ganga yfir Niðurfelling kílómetragjalds fær Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Hópur ferðamanna setti allt í vasana Rukka fyrir vanskráningu á morgun „Skynja rosalega mikla reiði“