Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Staðan mun verri en undanfarin ár

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 16.5.2026 | 12:00 Staðan mun verri en undanfarin ár Þótt alltaf sé þétt setinn bekkurinn á góðviðrisdögum eru margir veitingastaðir í vanda staddir. mbl.is/Karítas Höskuldur Daði Magnússon [email protected] Setja bókamerki „Veitingastaðir hafa mátt glíma við hækkun á nánast öllum útgjaldaliðum en nú bætist við að erlendum gestum fækkar. Fyrir staðina niðri í bæ er þetta tvöföld áskorun,“ segir Einar Bárðarson framkvæmdastjóri Sveit, samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði. Vandamálin hrannast nú upp hjá fyrirtækjum í veitingageiranum. Færri ferðamenn virðast ætla að heimsækja landið í ár en gert var ráð fyrir og fyrir vikið er minna um pantanir á veitingastöðum en ella. Morgunblaðið hefur haft spurnir af því að staðir séu komnir í greiðsluvanda hjá birgjum og ferðaþjónustufyrirtæki sem halda úti viðhaldsdeildum hafa boðið starfsfólk sitt til annarra fyrirtækja. Viðmælendur blaðsins segja ástandið mun verra en það hefur verið síðustu ár. Frá því var greint í Morgunblaðinu í apríl að blikur væru á lofti varðandi bókunarstöðu íslenskra hótela fyrir og eftir sumarið. Sagði Kristófer Oliversson, formaður Félags fyrirtækja í hótelrekstri, að fólk virtist halda að sér höndum á óvissutímum. Átök í Mið-Austurlöndum og hækkandi eldsneytisverð spila þar stóra rullu. Einar Bárðarson Einar rifjar upp að veitingastaðir hafi mátt glíma við hækkandi verð hjá birgjum, hækkandi leigu og launahækkanir síðasta ár eða svo. Hann segir að staðir í miðborg Reykjavíkur og á vinsælum áfangastöðum úti á landi sem stólað hafi mikið á erlenda gesti fái annan skell ef ferðamenn skila sér ekki. Hann hefur rætt við veitingamenn í miðborginni og segir söguna ekki fagra. „Ameríkanarnir duttu út fyrstir og svo bætast aðrir við sökum hækkandi olíuverðs og fleiri þátta. Nú er minna af erlendum ferðamönnum hér, allavega þeim sem koma til að njóta.“ Einar játar það fúslega að alltaf megi búast við sveiflum. „Auðvitað. Það er ekki hægt að sitja hér uppi við norðurpól og reikna það út að ferðamönnum muni alltaf fjölga. Þetta er alltaf háð einhverjum sveiflum og aðstæðum úti í heimi sem við ráðum ekkert við. En þetta hefur áhrif. Það gera líka skattar á komur erlendra skemmtiferðaskipa. Það þarf að halda þannig utan um kerfið að það komi ekki niður á uppbyggingunni. Við höfum verið mjög lánsöm með komur erlendra ferðamanna og okkur hefur tekist að byggja upp þjónustufyrirtæki sem beinlínis lifa á ferðamönnum, bæði í höfuðborginni og á landsbyggðinni. Nú eru áskoranir fyrirtækja á veitingamarkaði orðnar eins og marghöfða þurs og það þarf að skoða umhverfi þessara fyrirtækja.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Yfirgefur Nývang Myndir: Frambjóðendur landsins greiða atkvæði Bræðrasameining á Hlíðarenda? Staðan mun verri en undanfarin ár „Kominn tími til að ræða málin“ Umræðan Litla veislan! Þetta snýst um samfélagið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert X26: Öll viðtöl og kappræður á einum stað Gat ekki svarað „fráleitri“ spurningu Einars Dagurinn ólíkur öðrum kjördögum Greiða milljarða eftir raforku- og gasmælaskandal Mest lesið Í gær Í vikunni Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Frambjóðandi hyggst ekki kjósa með eigin flokki Keyrði á hjólreiðamann sem barði bílinn á móti Leyfir framkvæmdir vegna Borgarlínu Áttu von á fleiri atkvæðum fyrir norðan Kærður fyrir að trufla störf neyðarlínu ítrekað „Við getum ekki tekið við endalaust af fólki“ Kjördagur: Þetta þarf að hafa í huga Skólastarf flutt úr Skrímslasetri Frambjóðendur streyma á kjörstað: „Mjög skemmtilegt“ Fá allt að 400 þúsund kr. fyrir að stökkva til Kannast ekki við eigið kosningaloforð Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Þetta eru einkenni hantaveiru Ný könnun: Meirihluti til hægri mögulegur án Viðreisnar „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ Launin skert í fimmta sinn 16 fengu úthlutaða íbúð Flytja ráðuneytið í miðbæinn Kappræður X26: Borgarstjóraefnin berjast um borgina Greiddi sama flugið tvisvar Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Nýjast á mbl.is » Yfirgefur Nývang Myndir: Frambjóðendur landsins greiða atkvæði Bræðrasameining á Hlíðarenda? Staðan mun verri en undanfarin ár „Kominn tími til að ræða málin“ Umræðan Litla veislan! Þetta snýst um samfélagið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Staðan mun verri en undanfarin ár Ógildir íbúakosningu vegna verulegs ágalla Valdið færist til kjósenda Frambjóðendur streyma á kjörstað: „Mjög skemmtilegt“ Mest lesið Í gær Í vikunni Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Frambjóðandi hyggst ekki kjósa með eigin flokki Keyrði á hjólreiðamann sem barði bílinn á móti Leyfir framkvæmdir vegna Borgarlínu Áttu von á fleiri atkvæðum fyrir norðan Kærður fyrir að trufla störf neyðarlínu ítrekað „Við getum ekki tekið við endalaust af fólki“ Kjördagur: Þetta þarf að hafa í huga Skólastarf flutt úr Skrímslasetri Frambjóðendur streyma á kjörstað: „Mjög skemmtilegt“ Fá allt að 400 þúsund kr. fyrir að stökkva til Kannast ekki við eigið kosningaloforð Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Þetta eru einkenni hantaveiru Ný könnun: Meirihluti til hægri mögulegur án Viðreisnar „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ Launin skert í fimmta sinn 16 fengu úthlutaða íbúð Flytja ráðuneytið í miðbæinn Kappræður X26: Borgarstjóraefnin berjast um borgina Greiddi sama flugið tvisvar Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum

Share this article