Viðskipti | mbl | 12.3.2026 | 10:35 Sjónvarpsfréttirnar ekki með: „Það er nóg eftir“ María Björk Einarsdóttir er forstjóri Símans. Samsett mynd/Birta/mbl.is/Hari/mbl.is Eggert Viðar Guðjónsson [email protected] Setja bókamerki „Það er nóg eftir, en þetta er mikilvægur áfangi í ferlinu,“ segir María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans, um möguleg kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar. Líkt og fram kom í tilkynningu Sýnar til Kauphallarinnar hefur verið undirritað samkomulag um kaup Símans á miðlum Sýnar á miðlum síðarnefnda fyrirtækisins. Um er að ræða miðla á borð við Vísi, Já.is, Innherja og Bland.is á vefnum, auk útvarpsstöðvanna Bylgjunnar, Léttbylgjunnar, Gullbylgjunnar, FM957 og X977, ásamt hlaðvarpsveitunni Tal. Frétt af mbl.is Síminn að kaupa miðla Sýnar Enginn sjónvarpsrekstur í pakkanum Fréttir Stöðvar 2, sem meðal annars hafa verið reknar í samfloti við Vísi, eru ekki með í kaupunum. „Það er enginn sjónvarpsrekstur inni í þessu. Eingöngu útvarp og vefmiðlar,“ segir María Björk. Hún segir óljóst hve langan tíma muni taka að ganga frá endanlegum samningum. „Við erum ekki með neina tímalínu á þessum tímapunkti. Við erum búin að undirrita þetta skilmálaskjal og næstu skref eru áreiðanleikakannanir og kaupsamningsviðræður. Hafandi reynslu af slíku þá er allur gangur á því hvað það tekur langan tíma. Aðilar eru þó sammála um að vinna málið eins hratt og kostur er,“ segir María. Áreiðanleikakönnun felur í sér ítarlega skoðun á rekstrinum, lögfræðilega og fjárhagslega, sem byggir á gögnum frá SÝN sem Síminn fær nú aðgang að. Ekki á allra næstu vikum Að sögn Maríu þarf Samkeppniseftirlitið einnig að samþykkja kaupin. „Ef skrifað verður undir kaupsamning þá þarf að bera það undir Samkeppniseftirlitið og það getur tekið einhvern tíma. Þetta er því ekki að fara að ganga í gegn á næstu vikum. Við eigum enn eftir að tékka í nokkur box,“ segir María. Fellur vel að vegferð fyrirtækisins Hvers vegna hefur Síminn áhuga á því að fara í þennan rekstur? „Við höfum verið opin með það og sýnt það í verki að við séum í umbreytingu á félaginu. Við höfum tilkynnt um að við séum að færa rekstur Símans í nýtt dótturfélag, stofna móðurfélag og tilkynnt um kaup á öðrum félögum,“ segir María. „Við höfum verið að reka sjónvarps- og umhverfismiðla með góðum árangri. Eins höfum við þróað hugbúnað og tækni í kringum auglýsingasölu. Því teljum við að þetta falli vel að því sem við erum að gera nú þegar og teljum okkur í góðri stöðu til að byggja nýja einingu undir hinu nýja móðurfélagi,“ segir María. Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Nóbelsverðlaunahafar gagnrýna ESB Sigurður Már Jónsson Tilfinningar og tár á stjórnarheimilinu Fleira áhugavert „Með alla anga úti fyrir okkar fólk“ Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Mál tveggja fjölskyldna í Íran í vinnslu Segja víðtækar árásir hafnar Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Sögulega há álagning á bensínlítrann Baldvin Orri í nýtt starf hjá Kemi Magdalena ráðin fjármálastjóri Sverrir ráðinn framkvæmdastjóri öryggislausna Spáir stýrivaxtahækkun Óskar Ingi ráðinn fjármálastjóri Beru Musk metinn á 105 billjónir króna Hirtu bestu bitana úr þrotabúi BrewDog Lindex opnar í stað Útilífs í Smáralind Sif nýr sviðsstjóri hjá Hugverkastofunni Spáir stýrivaxtahækkun Magdalena ráðin fjármálastjóri Óskar Ingi ráðinn fjármálastjóri Beru Baldvin Orri í nýtt starf hjá Kemi Musk metinn á 105 billjónir króna Sif nýr sviðsstjóri hjá Hugverkastofunni Andstaða við Evrópusambandið fer vaxandi Lindex opnar í stað Útilífs í Smáralind Rósa verkefnastýra Jafnvægisvogar Jón Þorsteinn ráðinn forstjóri Beru Hirtu bestu bitana úr þrotabúi BrewDog Bauð RÚV 100 þætti af Latabæ Sif nýr sviðsstjóri hjá Hugverkastofunni Einn dalur verðmætari en hundrað Andstaða við Evrópusambandið fer vaxandi Spáir stýrivaxtahækkun Lindex opnar í stað Útilífs í Smáralind Þorsteinn kjörinn formaður SI Horfur breytast úr stöðugum í jákvæðar Betri fyrirmynd en Stjáni Blái Pistlar » Sigurður Már Jónsson Nóbelsverðlaunahafar gagnrýna ESB Sigurður Már Jónsson Tilfinningar og tár á stjórnarheimilinu Fleira áhugavert Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Vatnsból í hættumat Ferðamenn lentu á kafi í vatni Virða ber eignarrétt landeigenda Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Sögulega há álagning á bensínlítrann Baldvin Orri í nýtt starf hjá Kemi Magdalena ráðin fjármálastjóri Sverrir ráðinn framkvæmdastjóri öryggislausna Spáir stýrivaxtahækkun Óskar Ingi ráðinn fjármálastjóri Beru Musk metinn á 105 billjónir króna Hirtu bestu bitana úr þrotabúi BrewDog Lindex opnar í stað Útilífs í Smáralind Sif nýr sviðsstjóri hjá Hugverkastofunni Spáir stýrivaxtahækkun Magdalena ráðin fjármálastjóri Óskar Ingi ráðinn fjármálastjóri Beru Baldvin Orri í nýtt starf hjá Kemi Musk metinn á 105 billjónir króna Sif nýr sviðsstjóri hjá Hugverkastofunni Andstaða við Evrópusambandið fer vaxandi Lindex opnar í stað Útilífs í Smáralind Rósa verkefnastýra Jafnvægisvogar Jón Þorsteinn ráðinn forstjóri Beru Hirtu bestu bitana úr þrotabúi BrewDog Bauð RÚV 100 þætti af Latabæ Sif nýr sviðsstjóri hjá Hugverkastofunni Einn dalur verðmætari en hundrað Andstaða við Evrópusambandið fer vaxandi Spáir stýrivaxtahækkun Lindex opnar í stað Útilífs í Smáralind Þorsteinn kjörinn formaður SI Horfur breytast úr stöðugum í jákvæðar Betri fyrirmynd en Stjáni Blái