Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Sjónvarpsfréttirnar ekki með: „Það er nóg eftir“

Read Full Article →

Viðskipti | mbl | 12.3.2026 | 10:35 | Uppfært 11:37 Sjónvarpsfréttirnar ekki með: „Það er nóg eftir“ María Björk Einarsdóttir er forstjóri Símans. Samsett mynd/Birta/mbl.is/Hari/mbl.is Eggert Viðar Guðjónsson [email protected] Setja bókamerki „Það er nóg eftir, en þetta er mikilvægur áfangi í ferlinu,“ segir María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans, um möguleg kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar. Líkt og fram kom í tilkynningu Sýnar til Kauphallarinnar hefur verið undirritað samkomulag um kaup Símans á miðlum Sýnar. Um er að ræða miðla á borð við Vísi, Já.is, Innherja og Bland.is á vefnum, auk útvarpsstöðvanna Bylgjunnar, Léttbylgjunnar, Gullbylgjunnar, FM957 og X977, ásamt hlaðvarpsveitunni Tal. Frétt af mbl.is Síminn að kaupa miðla Sýnar Enginn sjónvarpsrekstur í pakkanum Fréttir Stöðvar 2, sem meðal annars hafa verið reknar í samfloti við Vísi, eru ekki með í kaupunum. „Það er enginn sjónvarpsrekstur inni í þessu. Eingöngu útvarp og vefmiðlar,“ segir María Björk. Hún segir óljóst hve langan tíma muni taka að ganga frá endanlegum samningum. „Við erum ekki með neina tímalínu á þessum tímapunkti. Við erum búin að undirrita þetta skilmálaskjal og næstu skref eru áreiðanleikakannanir og kaupsamningsviðræður. Hafandi reynslu af slíku þá er allur gangur á því hvað það tekur langan tíma. Aðilar eru þó sammála um að vinna málið eins hratt og kostur er,“ segir María. Áreiðanleikakönnun felur í sér ítarlega skoðun á rekstrinum, lögfræðilega og fjárhagslega, sem byggir á gögnum frá SÝN sem Síminn fær nú aðgang að. Ekki á allra næstu vikum Að sögn Maríu þarf Samkeppniseftirlitið einnig að samþykkja kaupin. „Ef skrifað verður undir kaupsamning þá þarf að bera það undir Samkeppniseftirlitið og það getur tekið einhvern tíma. Þetta er því ekki að fara að ganga í gegn á næstu vikum. Við eigum enn eftir að tékka í nokkur box,“ segir María. Fellur vel að vegferð fyrirtækisins Hvers vegna hefur Síminn áhuga á því að fara í þennan rekstur? „Við höfum verið opin með það og sýnt það í verki að við séum í umbreytingu á félaginu. Við höfum tilkynnt um að við séum að færa rekstur Símans í nýtt dótturfélag, stofna móðurfélag og tilkynnt um kaup á öðrum félögum,“ segir María. „Við höfum verið að reka sjónvarps- og umhverfismiðla með góðum árangri. Eins höfum við þróað hugbúnað og tækni í kringum auglýsingasölu. Því teljum við að þetta falli vel að því sem við erum að gera nú þegar og teljum okkur í góðri stöðu til að byggja nýja einingu undir hinu nýja móðurfélagi,“ segir María. 1 blogg um fréttina Bloggað um fréttina Jóhann Elíasson: ÞARNA ER HÆTT VIÐ AÐ FORRÁÐAMENN SÝNAR HAFI ENDANLEGA "GENGIÐ … Pistlar » Sigurður Már Jónsson Nóbelsverðlaunahafar gagnrýna ESB Sigurður Már Jónsson Tilfinningar og tár á stjórnarheimilinu Fleira áhugavert Fær ekki að leiða ráðherra til vitnis Verulegir annmarkar á dómi Landsréttar Ferðamenn lentu á kafi í vatni Dómar Landsréttar í hryðjuverkamálinu ómerktir Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Sjónvarpsfréttirnar ekki með: „Það er nóg eftir“ Sögulega há álagning á bensínlítrann Sverrir ráðinn framkvæmdastjóri öryggislausna Spá hækkun vaxta og verðbólgu Baldvin Orri í nýtt starf hjá Kemi Magdalena ráðin fjármálastjóri Spáir stýrivaxtahækkun Óskar Ingi ráðinn fjármálastjóri Beru Musk metinn á 105 billjónir króna Hirtu bestu bitana úr þrotabúi BrewDog Spáir stýrivaxtahækkun Magdalena ráðin fjármálastjóri Óskar Ingi ráðinn fjármálastjóri Beru Baldvin Orri í nýtt starf hjá Kemi Musk metinn á 105 billjónir króna Sif nýr sviðsstjóri hjá Hugverkastofunni Andstaða við Evrópusambandið fer vaxandi Lindex opnar í stað Útilífs í Smáralind Rósa verkefnastýra Jafnvægisvogar Jón Þorsteinn ráðinn forstjóri Beru Hirtu bestu bitana úr þrotabúi BrewDog Bauð RÚV 100 þætti af Latabæ Sif nýr sviðsstjóri hjá Hugverkastofunni Einn dalur verðmætari en hundrað Andstaða við Evrópusambandið fer vaxandi Spáir stýrivaxtahækkun Sjónvarpsfréttirnar ekki með: „Það er nóg eftir“ Lindex opnar í stað Útilífs í Smáralind Þorsteinn kjörinn formaður SI Horfur breytast úr stöðugum í jákvæðar Pistlar » Sigurður Már Jónsson Nóbelsverðlaunahafar gagnrýna ESB Sigurður Már Jónsson Tilfinningar og tár á stjórnarheimilinu Fleira áhugavert Vara við árásum á hafnir við Hormússund „Ósatt, bara lygar“ „Hefði verið fínt að ljúka þessu máli“ Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Sjónvarpsfréttirnar ekki með: „Það er nóg eftir“ Sögulega há álagning á bensínlítrann Sverrir ráðinn framkvæmdastjóri öryggislausna Spá hækkun vaxta og verðbólgu Baldvin Orri í nýtt starf hjá Kemi Magdalena ráðin fjármálastjóri Spáir stýrivaxtahækkun Óskar Ingi ráðinn fjármálastjóri Beru Musk metinn á 105 billjónir króna Hirtu bestu bitana úr þrotabúi BrewDog Spáir stýrivaxtahækkun Magdalena ráðin fjármálastjóri Óskar Ingi ráðinn fjármálastjóri Beru Baldvin Orri í nýtt starf hjá Kemi Musk metinn á 105 billjónir króna Sif nýr sviðsstjóri hjá Hugverkastofunni Andstaða við Evrópusambandið fer vaxandi Lindex opnar í stað Útilífs í Smáralind Rósa verkefnastýra Jafnvægisvogar Jón Þorsteinn ráðinn forstjóri Beru Hirtu bestu bitana úr þrotabúi BrewDog Bauð RÚV 100 þætti af Latabæ Sif nýr sviðsstjóri hjá Hugverkastofunni Einn dalur verðmætari en hundrað Andstaða við Evrópusambandið fer vaxandi Spáir stýrivaxtahækkun Sjónvarpsfréttirnar ekki með: „Það er nóg eftir“ Lindex opnar í stað Útilífs í Smáralind Þorsteinn kjörinn formaður SI Horfur breytast úr stöðugum í jákvæðar

Share this article