Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað töluvert frá því að átökin í Miðausturlöndum hófust fyrir tæpum tveimur vikum og hafa átökin afleidd áhrif á Ísland. Verðbólguáhrifin eru vissulega óumflýjanleg og eins og Viðskiptablaðið hefur fjallað um á síðustu dögum hefur hækkandi olíuverð töluverð áhrif á aðra þætti samfélagsins. Hækkandi olíuverð hefur einnig áhrif á skipaflutninga til og frá Íslandi en ólíkt flugfélögum verja skipafélög sig með svokölluðu olíugjaldi (BAF). Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Eimskips, segir hærra olíuverð auðvitað hafa áhrif á rekstur félagsins. „Við erum að sjá 40 til 50% hækkun á olíunni sem við erum að taka, sem hefur umtalsverð bein áhrif,“ segir Hilmar Pétur en Eimskip er stór kaupandi skipaolíu, svartolíu og dísilolíu. Eimskip birtir olíugjaldið opinberlega á mánaðarfresti. Þetta gjald er greitt af viðskiptavinum og ver félagið þannig í eðlilegum markaðsaðstæðum fyrir sveiflum í olíuverði. Viðskiptavinir Eimskips njóta þá einnig góðs af því þegar olíuverð lækkar því þá lækkar gjaldið. „Við erum bara að meta stöðuna núna dag frá degi þar sem þetta er mjög skörp hækkun,“ sagði Hilmar í samtali við Viðskiptablaðið á mánudaginn. Að sögn Hilmars hafa skipafélög úti í heimi verið að bregðast við með sérstöku neyðarálagi á viðskiptavini og er Eimskip að meta og greina stöðuna. Hilmar segir jafnframt að olíubirgjar félagsins hafi ekki gefið til kynna að það þurfi að hafa áhyggjur af skorti á olíu. „Eins og staðan er í dag eru áhyggjurnar mest um að þetta verði langvarandi átök. Birgðirnar voru ágætar fyrir,“ segir Hilmar að lokum. Áskrifendur geta lesið ítarlega umfjöllun Viðskiptablaðsins um olíuverð og áhrifin á Ísland hér.