Fjárfestar hafa verið að endurmeta áhættuálag á olíu vegna átakanna í Miðausturlöndum síðustu daga með tilheyrandi sveiflum á heimsmarkaðsverði á olíu. Heimsmarkaðsverð á Brent hráolíu, sem er alþjóðlega viðmiðunarverðið, hefur hækkað um tæp 30% síðastliðinn mánuð. Ráðandi þáttur í verðmyndun á hráolíu síðustu daga hefur verið byggður á útreikningum um hversu lengi röskun á skipaflutningum í gegnum Hormússundið muni standa yfir. Olíubirgðir heimsins voru fyrir átökin í góðu horfi og þrátt fyrir minni olíuframleiðslu í Írak, Kúveit og Sameinaða arabíska furstadæminu eftir að átökin hófust hefur framleiðsla verið nokkuð stöðug. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift