Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Breska hagkerfið stóð í stað

Read Full Article →

Breska hagkerfið náði engum vexti í janúar fyrir upphaf Íransstríðsins og var ástand efnahagsins enn verra en spár höfðu gert ráð fyrir. Á vef BBC segir að vöxturinn hafi ekki verið mikið meiri í desember sl. þegar hann mældist aðeins 0,1%. Tölurnar eru sagðar undirstrika viðkvæmni breska hagkerfisins sem var viðráðandi jafnvel fyrir stríðið í Íran sem hefur nú þegar haft neikvæð áhrif á orku og markaði um allan heim. Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands sagði í síðustu viku að því lengur sem stríðið varir, því líklegra er að það muni hafa meiri áhrif á breska hagkerfið. Mörg heimili í Bretlandi njóta orkuverndar með verðþaki en eru þó farin að finna fyrir eldsneytishækkunum við dælurnar. Slík hækkun gæti ýtt undir aukna verðbólgu en fyrir átökin voru Bretar á góðri leið með að nálgast 2% verðbólgumarkmið Englandsbanka.

Share this article