Verðbólga í Íran er nú í kringum 50% í kjölfar stríðsátaka samkvæmt nýjustu gögnum frá seðlabanka landsins. Á vef FT segir að átökin hafi ýtt hinu viðkvæma hagkerfi út í enn meiri kreppu og að heimilin séu farin að finna verulega fyrir hækkandi framfærslukostnaði. Árleg verðbólga í Íran var þegar yfir 40% áður en átökin hófust. Þrátt fyrir vopnahlé hefur efnahagur landsins haldið áfram að versna og má þar sérstaklega nefna lokun Hormússundsins sem hefur haft veruleg áhrif á utanríkisviðskipti Írans. Neytendur hafa fundið sérstaklega fyrir þessum áhrifum og hefur verð á helstu nauðsynjavörum eins og hrísgrjónum, eggjum og kjúklingi hækkað umtalsvert. Dæmi eru um að ostur hafi til að mynda hækkað um tæplega 30% á einni viku. Sjá einnig Verðbólga á evrusvæðinu hækkar meira en búist var við Greiningaraðilar telja að stríðið muni auka enn frekar bilið milli launaþróunar og verðbólgu og hafa bent á að launahækkanir þyrftu að tvöfaldast til að halda í við hækkandi framfærslukostnað. Fyrirtæki standa einnig frammi fyrir erfiðum rekstrarskilyrðum og hafa sum þeirra þegar gripið til uppsagna. Margir Íranar óttast að staðan muni halda áfram að versna og hafa stjórnvöld reynt að draga úr áhrifum með útgáfu matvælamiða til almennings. Fjölmiðlar í landinu hafa þó bent á að slíkar greiðslur dugi skammt til að mæta grunnþörfum heimila.