Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fjár­mögnunar­kostnaður ekki hærri síðan 1998

Read Full Article →

Ávöxtunarkrafa á breskum ríkisskuldabréfum til 30 ára náði í morgun sínu hæsta stigi frá árinu 1998. Hærri fjármögnunarkostnaður breska ríkisins er m.a. rakinn til áhrifa stríðsins í Írans og lokunar Hormússunds á verðbólguhorfur í Bretlandi, að því er kemur fram í frétt Financial Times . Ávöxtunarkrafa á 30 ára ríkisskuldabréfum hefur hækkað um 0,12 prósentustig í viðskiptum dagsins og stendur í 5,77% þegar fréttin er skrifuð. Krafan fór hæst upp í 5,79% í morgun. Ávöxtunarkrafa á tíu ára ríkisskuldabréfum hafði hækkað um 0,15% þegar mest lét og stóð þá í 5,11% en til samanburðar fór krafan í þessum flokki hæst upp í 5,12% á síðustu 18 árum. Krafan stendur nú í 5,08%. Fjárfestar á skuldabréfamarkaði gera nú almennt ráð fyrir að Englandsbanki, seðlabanki Bretlands, neyðist til að hækka stýrivexti til bregðast við verðbólguþrýstingi vegna hækkunar olíuverðs. Vaxtakostnaður Bretlands, sem er nú þegar sá hæsti meðal G7-ríkjanna, hefur aukist verulega á síðustu árum og nemur yfir 100 milljörðum punda á ári.

Share this article