Grindavík og Stjarnan mættust í 20. umferð Bónusdeildar karla í körfubolta í kvöld. Sigur Grindvíkinga tryggði þeim sex stiga forskot á toppi deildarinnar og þar með deildarmeistaratitilinn um leið. Þótt Tindastóll eigi enn eftir þrjá leiki og gæti því jafnaði Grindavík að stigum hefur Grindavík vinninginn því liðið á betri úrslit í innbyrðis viðureignum liðanna. Það stefndi ekki í sigur framan af Mikið jafnræði var meðal liðanna fyrstu mínúturnar en Stjarnan náði þó upp ellefu stiga forskoti að fyrsta fjórðungi loknum, 19-30. Þaðan héldu Garðbæingar forystunni og leiddu með níu stigum í hálfleik, 44-53. Það var ekki fyrr en eftir rúma mínútu í fjórða leikhluta sem DaAndre Kane jafnaði fyrir Grindavík með þriggja stiga körfu, 75-75. Jordan Semple kom liðinu tveimur stigum yfir, 79-77, og skömmu síðar bætti Kante um betur, 81-77. Grindavík náði sjö stiga forskoti þegar fjórar mínútur voru eftir, 87-80. Stjarnan hélt þó spennu í leiknum og minnkaði muninn í tvö stig þegar rúm ein og hálf mínúta lifði leiks, 87-85. Það dugði þó ekki til því Ólafur Ólafsson jók muninn á ný í fimm stig, 92-87. Þaðan fékk Stjarnan eitt vítaskot sem Luka Gasic nýtti en lokatölur urðu 92-88, Grindavík í vil. Sigurinn færir þeim sem fyrr segir deildarmeistaratitilinn en þetta er í fyrsta sinn síðan 2013 sem Grindavík fagnar þeim titli. Það ár varð liðið einnig Íslandsmeistari og svo bikarmeistari árið 2014. En síðan þá hefur liðið ekki unnið stóran titil.