Landsbankinn hefur lokið kaupum á eigin hlutabréfum af minnihlutaeigendum bankans að andvirði 66,9 milljónir króna. Bankinn greinir frá þessu í tilkynningu . Landsbankinn tilkynnti þann 25. febrúar sl. um að bankaráð bankans hefði ákveðið að nýta heimild til endurkaupa á allt að 48 milljónum hluta eða sem nemur um 0,2% af útgefnu hlutafé bankans. Með endurkaupunum var minnihlutaeigendum boðið að selja hluti sína í bankanum. Sjá einnig Bjóðast til að kaupa minnihlutaeigendur út Alls keypti Landsbankinn á 4.594.709 eigin hluti á genginu 14,56, að heildarkaupverði 66.898.959 krónur frá 2. mars til og með 13. mars. Til samanburðar gátu endurkaup á tímabilinu að hámarki samtals 48 milljónum hluta. Ætla má því að minnihlutaeigendur bankans eiga nú samtals í kringum 43 milljónir hluta í Bankanum, eða um 0,18% af útistandandi hlutafé bankans. Virði eignarhlutar minnihlutaeigenda nemur í dag rúmlega 620 milljónum króna miðað við 14,56 gengið í viðskiptunum. Gengið er í samræmi við það eigið fé sem tilheyrir hluthöfum bankans en það nam 343,8 milljörðum króna í loks síðasta árs. Í lok síðasta árs var fjöldi hluthafa í bankanum 819. Flestir hluthafar bankans störfuðu hjá bankanum árið 2013 þegar Landsbankinn afhenti starfsmönnum sem höfðu verið í fullu starfi í fjögur ár samtals um 0,5% hlut í bankanum, samkvæmt samkomulagi frá árinu 2009 um fjárhagsuppgjör milli Landsbankans og þrotabús Landsbanka Íslands (LBI). Hluthöfum Landsbankans fjölgaði einnig árið 2015 þegar bankinn tók yfir í sitt hvorum samrunanum allar eignir, skuldir og starfsemi Sparisjóðs Vestmannaeyja og Sparisjóðs Norðurlands. Greiðslan til stofnfjáreigenda þessara sparisjóða var í formi hlutabréfa í Landsbankanum.