Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Náðu ekki lengra en út að vegamótum

Read Full Article →

Innlent | mbl | 16.3.2026 | 13:31 Náðu ekki lengra en út að vegamótum Hringveginum um Holtavörðuheiði var lokað milli afleggjara Hvammstanga og Víðigerðis í gærkvöldi. Mynd úr safni. mbl.is/Golli Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Gestir Alberts Guesthouse á Hvammstanga náðu ekki lengra en út að vegamótum við þjóðveginn eftir að hafa fengið grænt ljós frá Vegagerðinni til að fara aftur af stað til síns heima í gær. Þær urðu því að snúa við og fara aftur í þorpið. Alla Dóra, eigandi gistiheimilisins, bauð konurnar að sjálfsögðu velkomnar í húsið á ný. Svo fór síminn að hringja og þegar fólk fór að ganga til náða í gærkvöldi voru 17 manns í húsinu sem tekur alls 20 í gistingu. Hringveginum um Holtavörðuheiði var lokað milli afleggjara Hvammstanga og Víðigerðis í gærkvöldi. Rúta fór þar út af veginum og talsverður fjöldi bíla sat fastur. Frétt af mbl.is Rúta fór út af vegi á Holtavörðuheiði Get tekið á móti þeim sem höfðu samband „Það var bara ógeðslegt veður. Konurnar biðu fram eftir degi en svo komu þær til baka þegar allt var að verða lokað,“ segir Alla. Á þessum árstíma er ekki mikið um ferðamenn á Hvammstanga og því var slatti af lausum rúmum í gær. „Það var bara gott að geta tekið á móti þeim sem hringdu.“ Þegar blaðamaður náði tali af henni laust fyrir klukkan 11 í morgun voru flestir gestirnir farnir en þeir síðustu að koma fram. „Nú er búið að opna allt og hér er náttúrulega bara sól og blíða sem er náttúrulega alveg með ólíkindum,“ segir hún. Spurð hvort um hafi verið að ræða sólarhringshvell viðurkennir Alla að veður hafi ekki verið skemmtilegt um helgina. „Laugardagurinn var fínn en sunnudagurinn var svona... skánaði og versnaði á víxl.“ Hér má sjá gistiheimilið sem Alla rekur. Samsett mynd/Aðsend Frosnar pítsur á gamla veitingastaðnum Hún segir gestina hafa verið sæla með allt saman og fyrst og fremst fegna því að komast í hús. „Og maður var heppinn að eiga frosnar pítsur og eitthvað til að gefa þeim, þannig að það voru allir glaðir sko,“ segir Alla sem rekur ekki veitingasölu á gistiheimilinu. „Þetta var bara minn forði. Það er alltaf eitthvað til að bíta og brenna.“ Þegar Alla keypti gistiheimilið var búið að selja allt út úr eldhúsinu. „Þetta var náttúrulega barinn og veitingastaðurinn og allt hérna áður fyrr.“ Spurð hvort gestir hennar hafi lent í hrakningum segir hún eitt par, sem hafi verið á sendibíl, hafa komið með björgunarsveitarbíl í hús en aðrir hafi komist á eigin vegum. „Svona sendibílar taka svo mikinn vind á sig. Þeir skutluðu þeim bara og svo skutluðum við þeim út á veg aftur.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Þrjár íslenskar konur á leið á HM Allt á útopnu: Fyrsta íslenska konan leggur veislufat fyrir dómara í Bocuse Náðu ekki lengra en út að vegamótum Myndir: Kópavogur verður Bókavogur Íris ráðin viðskiptastjóri hjá SI Umræðan Hver á þennan bústað, já eða nei? Grænni, friðsamlegri og manneskjulegri framtíðarsýn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir lokanirnar klárt brot á lögum landsins Hafa opnað tvær fjöldahjálparstöðvar Flóðið við Siglufjörð: „Þurfum að vera vel á tánum“ Langvinn skjálftahrina suðaustan við Bárðarbungu Mest lesið Í gær Í vikunni Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Snýr aftur eftir endurhæfingu Eldurinn kviknaði út frá kerti „Þá leist okkur ekki á blikuna“ New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Bendir á pólitískan ómöguleika Fundarfall þegar ráðherrann fór til Síle Gular viðvaranir: Stormur og hríð í kortunum Um 500 manns biðu veðrið af sér Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns „Hélt ég væri game over“ Ólafur Ragnar furðar sig á „óvissudansi“ ESB Þjóðvegurinn lokaður: Koma upp fjöldahjálparstöð Unnið við lúxushótel á ný Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í íbúð Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Andlát: Þorkell Jóelsson Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Nýjast á mbl.is » Þrjár íslenskar konur á leið á HM Allt á útopnu: Fyrsta íslenska konan leggur veislufat fyrir dómara í Bocuse Náðu ekki lengra en út að vegamótum Myndir: Kópavogur verður Bókavogur Íris ráðin viðskiptastjóri hjá SI Umræðan Hver á þennan bústað, já eða nei? Grænni, friðsamlegri og manneskjulegri framtíðarsýn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Langvinn skjálftahrina suðaustan við Bárðarbungu Hríðarveður norðvestanlands Hafa opnað tvær fjöldahjálparstöðvar Segir lokanirnar klárt brot á lögum landsins Mest lesið Í gær Í vikunni Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Snýr aftur eftir endurhæfingu Eldurinn kviknaði út frá kerti „Þá leist okkur ekki á blikuna“ New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Bendir á pólitískan ómöguleika Fundarfall þegar ráðherrann fór til Síle Gular viðvaranir: Stormur og hríð í kortunum Um 500 manns biðu veðrið af sér Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns „Hélt ég væri game over“ Ólafur Ragnar furðar sig á „óvissudansi“ ESB Þjóðvegurinn lokaður: Koma upp fjöldahjálparstöð Unnið við lúxushótel á ný Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í íbúð Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Andlát: Þorkell Jóelsson Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir

Share this article