Donald Trump Bandaríkjaforseti heldur blaðamannafund í beinni áður en hann sest til hádegisverðar með stjórn Kennedy Center í Washington. Viðburðurinn hefst 15:45 að íslenskum tíma en Trump hefur ekki greint nánar frá efni fundarins en allt bendir til að stríðið við Íran verði þar í brennidepli. Blaðamannafundurinn kemur í kjölfar þess að átökin hafa harðnað enn frekar. Bretland og Evrópusambandið hafa rætt leiðir til að opna Hormússund á ný, eftir að siglingar þar röskuðust verulega, og bresk stjórnvöld hafa meðal annars nefnt mögulega notkun fjarstýrðra tundurduflaleitarskipa. Trump hefur jafnframt sagt að hann og ráðgjafar hans hafi leitað til sjö ríkja um aðstoð við að tryggja siglingaleiðina. Á sama tíma hefur Ísrael sagt að landhernaðaraðgerðir séu hafnar í Líbanon á meðan árás í nágrenni flugvallarins í Dúbaí olli röskun á flugi þar í morgun. Olíufjárfestar fylgjast grannt með, enda hefur óróinn í Persaflóa og Hormússundi haft bein áhrif á orkuverð og alþjóðlegar birgðakeðjur. Vænta má þess að Trump fari yfir þessa stöðu á fundinum, ekki síst í ljósi þess að Hvíta húsið hefur síðustu daga beint aukinni athygli að öryggi siglinga, olíuflutningum og alþjóðlegum stuðningi við aðgerðir Bandaríkjanna á svæðinu