Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Guðmundur á leið í stjórn Brims

Read Full Article →

Guðmundur Marteinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Bónus, mun taka sæti í stjórn útgerðarfélagsins Brims. Þetta kemur fram í tilkynningu Brims til Kauphallarinnar. Guðmundur tekur sæti í stjórn fyrir Magnús M.S. Gústafsson, fyrrverandi aðalræðismann Íslands í New York og forstjóra Coldwater Seafood og Hampiðjunnar. Magnús, sem hefur setið í stjórn Brims frá árinu 2018, sækist ekki eftir endurkjöri. Aðeins bárust fimm framboð og því er sjálfkjörið í stjórnarsætin fimm. Í stjórninni, sem er að öðru leyti óbreytt, munu sitja: Anna G. Sverrisdóttir Guðmundur Marteinsson Hjálmar Þór Kristjánsson Kristján Þ. Davíðsson Kristrún Heimisdóttir Guðmundur Marteinsson starfaði hjá Bónus á árunum 1992-2024, þar af sem framkvæmdastjóri frá árinu 2024 og leiddi þar öran vöxt matvöruverslunarinnar. Sjá einnig Kveður Bónus með stolti Guðmundur á 74 þúsund hluti í Brim sem eru um 6,1 milljónir króna að markaðsvirði miðað við núverandi markaðsgengi upp á 83 krónur á hlut.

Share this article