Vilhjálmur Árnason, þingmaður og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, gagnrýnir harðlega möguleg gjaldtöku á Reykjanesbraut. „Þessi áform mega ekki ná fram að ganga nema kílómetragjöld og vörugjöld á bifreiðar séu afnumin áður,“ segir Vilhjálmur í færslu á Facebook. Eins og Viðskiptablaðið fjallaði um í dag segir fjármálaráðuneytið í greinargerð frumvarps um áformað innviðafélag ríkisins að það gæti mögulega komið til skoðunar að færa Reykjanesbraut og Suðurlandsveg inn í félagið með það í huga að innheimta þar veggjöld. Sjá einnig Skoða gjaldtöku á Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi Vilhjálmur deilir frétt Viðskiptablaðsins og segir að eftir að ríkisstjórnin samþykkti „meingallað frumvarp“ um kílómetragjald á flestalla landsmenn sem tók gildi um áramótin, stefni hún nú á að leggja á umfangsmikla vegtolla sem gætu bitnað á langflestum landsmönnum, ekki síst á Suðurnesjamönnum. „Það eru ýmsar leiðir til að fjármagna vegakerfið. Ríkisstjórnin hefur hins vegar valið að fara allar í einu. Fyrst átti að sækja milljarðana með hækkun veiðigjalda. Þegar það gekk ekki eftir var gripið til kílómetragjalda og snarhækkun vörugjalda á bíla. Nú á að bæta vegtollum ofan á. Það er ekki eitt. Það er allt.“ Hann segir sveitarstjórnir þeirra svæða sem veggjöld á þessum vegum muni hafa mest áhrif verði að bregðast strax við og mótmæla þessum áformum harðlega.