Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir umfjöllun um að stjórnvöld séu að skoða gjaldtöku á Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi vera „þvættingur og moldviðri út af engu“. „Engin áform uppi um neitt í þessa veru og slíkt aldrei verið rætt í ríkisstjórn. Næsta mál,“ skrifar Jóhann Páll í færslu á Facebook. Eins og Viðskiptablaðið fjallaði um í gær segir fjármálaráðuneytið í greinargerð frumvarps um áformað innviðafélag ríkisins að það gæti mögulega komið til skoðunar að færa Reykjanesbraut og Suðurlandsveg inn í félagið með það í huga að innheimta þar veggjöld. Sjá einnig Skoða gjaldtöku á Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi Í greinargerð frumvarpsins segir að með slíkum aðgerðum yrði innheimta veggjalda á öllum helstu leiðum til og frá höfuðborgarsvæðinu „sem í fælist ákveðin sanngirni þar sem byrðum yrði dreift á vegfarendur hvar sem þeir byggju eða störfuðu“. Vilhjálmur Árnason, þingmaður og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, gagnrýndi harðlega möguleg gjaldtöku á Reykjanesbraut. „Þessi áform mega ekki ná fram að ganga nema kílómetragjöld og vörugjöld á bifreiðar séu afnumin áður,“ skrifaði Vilhjálmur í færslu á Facebook í gær. Sjá einnig Bæjarstjóraefni mótmælir gjaldtöku á Reykjanesbraut