Daði Kristjánsson, framkvæmdastjóri Visku sjóða, veltir því upp hvort ríkisstjórnin sé viljandi að halda efnahagsmálum hér á landi í ólestri á sama tíma og hún vilji auka stuðning við inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Þetta segir Daði í færslu á Facebook í morgun í kjölfar þess að Seðlabanki Íslands hækkaði stýrivexti um 0,25 prósentur. Hann kveðst telja vaxtaákvörðunina mjög skiljanlega, enda sé hlutverk bankans samkvæmt lögum að ná verðbólgu að 2,5 prósenta markmiði. Daði segir að svo virðist vera að Seðlabankinn virðist vera „einn í liði“ í þeirri baráttu og bendir máli sínu til stuðnings á helsta undirlið verðbólgunnar, hækkun á opinberri þjónustu. „Við erum í skrítinni stöðu. Við erum með ríkisstjórn sem vill troða okkur í ESB og maður hreinlega spyr sig hvort ríkisstjórnin sé að reyna að hafa efnahagsmálin hér heima í algjörum ólestri til þess að auka líkurnar á að fólk velji að fara í ESB. Við þurfum að fara rífa okkur í gang hérna heima og taka ábyrgð á okkur sjálfum. Daði tengir þessa þróun við pólitíska umræðu um Evrópusambandið og að það sé tálsýn að þar finnist töfralausn. „Það eru engar töfralausnir, og ESB er svo sannarlega ekki töfralausn heldur efnahagslega hnignandi samband eins og allir sjá sem kynna sér málin.”