Vinsældir forsmíðaðra byggingareininga hafa aukist hér á landi á undanförnum árum og samhliða þeirri þróun hefur myndast mikil sérfræðiþekking hjá fasteigna- og innviðateymi Arion banka við að fjármagna slíkar einingar að utan. Það sem veitir Arion banka sérstöðu á þessu sviði er þó ekki aðeins mikil sérfræðiþekking heldur sömuleiðis öflugt samstarf við Vörð, tryggingafélagið sem er hluti af Arion-samstæðunni og hefur verið í miklum vexti á síðustu árum, ekki síst hvað varðar fyrirtækjatryggingar. Guðmunda Ósk Kristjánsdóttir, forstöðumaður fasteigna og innviða, segir að samþætt banka- og tryggingaþjónusta Arion spari framkvæmdaraðilum sporin og veiti þeim vissa hugarró. Hátt í tuttugu þúsund fyrirtæki séu í viðskiptum við Arion banka en um 6.500 fyrirtæki í viðskiptum við Vörð tryggingar. Hlutfall þeirra fyrirtækja sem sjái hag sínum best borgið í því að vera bæði hjá bankanum og Verði sé sífellt að hækka. Þetta gildi ekki síst í verktakageiranum. „Þegar framkvæmdaraðilar leita til okkar hjá Arion er hugað jafnt að fjármögnun og tryggingum strax frá upphafsstigum nýrra verkefna,“ segir Guðmunda. Með því að fá slíka heildarlausn á einum og sama stað þurfi ekki að margkynna verkefnið fyrir ólíkum félögum, þar sem þekking og skilningur sé þegar til staðar undir sama þaki. Af þessu hljótist því bæði hagræði og tímasparnaður. „Forsvarsmenn fyrirtækja eru fljótir að sjá hvað þetta fyrirkomulag er hagkvæmt, enda gerum við allt frá því að veita ráðgjöf við lánsfjármögnun, sníða hentugustu tryggingar hverju sinni sem og að veita sjálft lánið.“ Í þessu samhengi nefnir Guðmunda sérstaklega kaup á svokölluðum module-einingum að utan. Að mörgu þurfi að huga í þeim efnum, til að mynda hvernig standa eigi að fyrirframgreiðslum, hver beri ábyrgð á flutningi eininganna yfir hafið og eins á verkstað þegar til landsins er komið. Þá þurfi að skera úr um hvernig verktaki er tryggður varðandi samsetningu eininganna. Svo mætti áfram telja. Guðjón Bjarni Hálfdánarson er teymisstjóri fyrirtækjatrygginga hjá Verði og öllum hnútum kunnugur hvað varðar tryggingalausnir í byggingarframkvæmdum. „Í byggingabransanum er hraðinn oft ótrúlega mikill og kostnaðurinn sömuleiðis hár. Við viljum að framkvæmdaraðilar geti andað rólega og einbeitt sér að sínu verki,“ segirGuðjón Bjarni. „Við erum því með ólíkar lausnir eftir eðli og umfangi verkefna.“ Guðjón Bjarni segir að í byggingariðnaði hafi Vörður öflugt vöruframboð. Í tilviki forsmíðuðu byggingareininganna henti tvær tryggingalausnir best. „Mannvirkjatryggingin okkar er einföld trygging fyrir viðskiptavini Varðar. Verndin er hugsuð fyrir umfangsminni framkvæmdir, sem eru skráðar á ákveðinn vátryggingarstað, og áætlaður verktími þarf að liggja fyrir. Í mörgum tilvikum er þetta því gott fyrirkomulag fyrir verktaka.“ „Í stærri og viðameiri verkefnum mælum við hins vegar með verktakatryggingu (CARtryggingu), sem hefur fengið jákvæð viðbrögð hjá byggingarverktökum. Þetta er vátrygging fyrir stærstu byggingar- og uppsetningarverkefnin og nær frá upphafi verks til enda framkvæmda. Verndin er víðtækari og gildir þar sem áætlað umfang verksins og verndar liggur fyrir í upphafi framkvæmdarinnar.“ Munurinn er því í stuttu máli sá að mannvirkjatryggingin miðast við tiltekna byggingu en CAR-tryggingin er alhliðatrygging sem nær til framkvæmdarinnar í heild sinni, frá upphafi til enda verks. „Svo mælum við auðvitað bara með því að fólk hafi samband og finni bestu lausnina með okkur,“ segir Guðjón Bjarni. „Fái sér bolla með okkur og taki spjallið. Markmið okkar er að láta fjármál og tryggingar vinna betur saman – við erum skapandi í hugsun og viljum finna lausnirnar sem virka, erum óhrædd við að prófa nýja hluti og taka frumkvæði eins og Arionsamstæðan er þekkt fyrir.“