Stjórn Landssambands lögreglumanna gagnrýnir harðlega ástand starfsaðstöðu lögreglumanna á Ísafirði og krefst tafarlausra úrbóta. Í ályktun segir að verði ekki brugðist við með skýrum hætti á næstunni verði aðstöðunni lokað. „Að mati Landssambands lögreglumanna er fullljóst að nauðsynlegu og eðlilegu viðhaldi hefur ekki verið sinnt um langt árabil.“ Húsnæði og aðstaða lögreglunnar á Ísafirði hefur, að sögn sambandsins, verið í „algjörum ólestri“ í fleiri ár án nauðsynlegra aðgerða. Meðal þess sem lögreglumenn hafa kvartað yfir er raki og mygla, ófullnægjandi lýsing, vatnsleki og óboðleg búnings- og salernisaðstaða. Þá hefur verið kvartað undan aftengdu brunakerfi og skorti á öryggisstýringum. Segir í ályktun að ástandið hafi í sumum tilfellum haft slæm áhrif á heilsufar lögreglumanna á svæðinu. Sambandið harmar sinnuleysi yfirvalda í málinu og krefst „tafarlausra aðgerða þeirra sem fara með fasteignamál ríkisins að þessu leyti.“ Ljóst sé að í algjört óefni sé komið og aðgerðir til úrbóta þoli enga bið.