Stjórn Landssambands lögreglumanna gagnrýnir starfsaðstöðu lögreglumanna á Ísafirði og krefst tafarlausra úrbóta. Í ályktun segir að ef ekki verður brugðist við með skýrum hætti á næstunni verði aðstöðunni lokað. „Að mati Landssambands lögreglumanna er fullljóst að nauðsynlegu og eðlilegu viðhaldi hefur ekki verið sinnt um langt árabil.“ Húsnæði og aðstaða lögreglunnar á Ísafirði hefur, að sögn sambandsins, verið í algjörum ólestri í mörg ár án nauðsynlegra aðgerða. Lögreglumenn hafa kvartað yfir raka og myglu, ófullnægjandi lýsingu, vatnsleka og óboðlegri búnings- og salernisaðstöðu. Þá hefur verið kvartað undan því að brunakerfi sé aftengt og öryggisstýringar skorti. Í ályktun segir að ástandið hafi í sumum tilfellum haft slæm áhrif á heilsu lögreglumannanna. Sambandið harmar sinnuleysi yfirvalda og krefst „tafarlausra aðgerða þeirra sem fara með fasteignamál ríkisins að þessu leyti.“ Ljóst sé að í algjört óefni sé komið og aðgerðir til úrbóta þoli enga bið.