Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Þolir enga bið

Read Full Article →

Innlent | mbl | 19.3.2026 | 13:24 Þolir enga bið Þrátt fyrir ítrekað ákall, úttektir og skýrslur Vinnueftirlitsins og stanslausar ábendingar embættisins og starfsmanna þess um meðal annars rakaskemmdir og myglu, ófullnægjandi loftræstingu í vinnurýmum, vatnsleka í veggjum, aftengt brunavarnakerfi, skort á öryggisstýringum, ófullnægjandi lýsingu, að hita- og rakastig sé í ólagi og óboðlega búninga- og salernisaðstöðu hafa fullnægjandi úrbætur ekki átt sér stað. Ljósmynd/Lögreglan á Vestfjörðum Setja bókamerki Stjórn Landssambands lögreglumanna harmar sinnuleysi yfirvalda í nauðsynlegum úrbótum í húsnæðis- og aðstöðumálum lögreglustöðvarinnar á Ísafirði. Krefst stjórnin tafarlausra aðgerða þeirra sem fara með fasteignamál ríkisins og segir ljóst að aðgerðir til úrbóta þoli enga bið. Í ályktun sem stjórn Landssambands lögreglumanna sendi frá sér í dag harmar hún þá alvarlegu stöðu sem uppi hefur verið um langt skeið í húsnæðis- og aðstöðumálum lögreglu á Ísafirði og segir að verði ekki brugðist við með skjótum og viðeigandi hætti á næstu vikum og mánuðum verður starfsaðstöðu lögreglu á Ísafirði lokað á grundvelli laga sem gilda á sviði vinnuverndar, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og um húsnæði vinnustaða. Í ályktuninni segir að húsnæðis- og aðstöðumál lögreglumanna á Ísafirði hafi verið í algerum ólestri mörg undanfarin ár. Þrátt fyrir ítrekað ákall, úttektir og skýrslur Vinnueftirlitsins og stanslausar ábendingar embættisins og starfsmanna þess um meðal annars rakaskemmdir og myglu, ófullnægjandi loftræstingu í vinnurýmum, vatnsleka í veggjum, að hita- og rakastig sé í ólagi, aftengt brunavarnakerfi, skort á öryggisstýringum, ófullnægjandi lýsingu og óboðlega búnings- og salernisaðstöðu hafi fullnægjandi úrbætur ekki átt sér stað. Nauðsynlegu viðhaldi ekki sinnt Að mati stjórnar er ljóst að nauðsynlegu viðhaldi hefur ekki verið sinnt um langt árabil. Í ályktuninni segir að starfsmenn hafi lengi kvartað yfir m.a. loftgæðum, raka og ófullnægjandi starfsaðstöðu og að ástandið hafi haft slæm áhrif á heilsu þeirra og í sumum tilvikum heilbrigði. Þar er einnig vísað til þess að Vinnueftirlitið hafi ítrekað gert athugasemdir og krafist úrbóta, m.a. til að tryggja að raki í byggingarefnum eða afleiðingar hans rýri ekki eðlileg heilbrigðis- og hollustuskilyrði innandyra og valdi starfsfólki tjóni. Starfsaðstöðu verði lokað ef ekki er brugðist við Í ályktuninni segir að núverandi aðbúnaður og starfsaðstaða lögreglumanna á Ísafirði sé með öllu óboðleg og geri erfitt um vik með störf. „Verði ekki brugðist við með skjótum og viðeigandi hætti á næstu vikum og mánuðum verður starfsaðstöðu lögreglu á Ísafirði lokað á grundvelli laga sem gilda á sviði vinnuverndar, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og um húsnæði vinnustaða.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Þolir enga bið Hegseth: Engin ákveðin tímaáætlun liggur fyrir Litur sem færir Miðjarðarhafið inn í matseldina Tekjur Alvotech jukust um 21% Úthlutaði 600 milljónum til 11 verkefna Umræðan Tölum íslensku Árangur í útlendingamálum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sunnan hvassviðri eða stormur víða um land Segja úrbætur hafa verið gerðar eftir brunann Þolir enga bið Framlegðarhlutur olíufélaga hækkað verulega Mest lesið Í gær Í vikunni Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Tveir fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Stórt snjóflóð féll úr Kirkjubólshlíð Ítrekaður vatnselgur í nýlegum undirgöngum Sigríður telur að sér vegið Sunnan hvassviðri eða stormur víða um land Grófu skurði til að verja innviði við Reynisfjöru Holtavörðu- og Öxnadalsheiði lokaðar Gæti dugað fyrir allt að 400 íbúðum Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ „Stærsta bylting sem við höfum séð“ Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Öll merki um að of mikið hafi verið tekið út Hefði verið hægt að fyrirbyggja mannslát Réðst á einn á Landspítala og tók af honum farsíma Gular viðvaranir á stórum hluta landsins Seðlabankinn hafi misst tökin Rannsókn lokið og ákæra gefin út í dag Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Drukknir menn reikuðu um gólfið „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Nýjast á mbl.is » Þolir enga bið Hegseth: Engin ákveðin tímaáætlun liggur fyrir Litur sem færir Miðjarðarhafið inn í matseldina Tekjur Alvotech jukust um 21% Úthlutaði 600 milljónum til 11 verkefna Umræðan Tölum íslensku Árangur í útlendingamálum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Framlegðarhlutur olíufélaga hækkað verulega Ríkið verði að draga úr eigin eftirspurn Þolir enga bið Hótar að eyðileggja stærsta gasvinnslusvæði Írans Mest lesið Í gær Í vikunni Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Tveir fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Stórt snjóflóð féll úr Kirkjubólshlíð Ítrekaður vatnselgur í nýlegum undirgöngum Sigríður telur að sér vegið Sunnan hvassviðri eða stormur víða um land Grófu skurði til að verja innviði við Reynisfjöru Holtavörðu- og Öxnadalsheiði lokaðar Gæti dugað fyrir allt að 400 íbúðum Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ „Stærsta bylting sem við höfum séð“ Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Öll merki um að of mikið hafi verið tekið út Hefði verið hægt að fyrirbyggja mannslát Réðst á einn á Landspítala og tók af honum farsíma Gular viðvaranir á stórum hluta landsins Seðlabankinn hafi misst tökin Rannsókn lokið og ákæra gefin út í dag Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Drukknir menn reikuðu um gólfið „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“

Share this article