Mikilvægt er að endurbyggja traust milli ríkja í Mið-Austurlöndum sagði forsætisráðherra Katar, Sheikh Mohammed bin Abdulrahman bin Jassim Al Thani, í dag. Bandaríkin og Ísrael hafa gert árásir á Íran síðan 28. febrúar þegar herir ríkjanna réðu æðstaklerkinn af dögum. Í gær gerði Ísraelsher árás á stóra gasvinnslustöð í Íran. Íranar hafa gert gagnárásir á nágrannaríkin, fyrst á bandarískar herstöðvar í ríkjunum og í morgun á gas- og olíuframleiðslustöðvar í Katar og Kúveit. Forsætisráðherra Katar segir árásir Írana hafa verið mikið áfall og að þær veki ýmsar spurningar í heimshlutanum um samskipti nágrannaríkja. Þá sagði hann fullyrðingar Írana um að þeir geri aðeins árásir á bandarískar herstöðvar ekki halda vatni. Árás í morgun á stærstu gasvinnslustöð í heimi, Ras Laffan, sýni að Íranar beini árásum sínum að orkuinnviðum sem eru mikilvægir fyrir Katar og heiminn allan. Afleiðinga árásarinnar gæti víða um heim. Það sé vilji til þess að lifa í sátt og samlyndi við Írana.