Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hóta því að mikilvægir innviðir verði fyrir óafturkræfum skemmdum

Read Full Article →

Íranar vara við óafturkræfum skemmdum á mikilvægum innviðum í Mið-Austurlöndum ráðist Bandaríkin á orkuver landsins. Donald Trump Bandaríkjaforseti gaf Írönum tveggja sólarhringa frest til að opna fyrir skipaumferð um Hormússund áður en Bandaríkjaher hefur gereyðingu orkuvera landsins. Olíuvinnslustöðvar og orkuinnviðir lögmæt skotmörk Trump sagði á samfélagsmiðli sínum Truth Social að því stærsta verði tortímt fyrst. Talið er að yfirlýsingu forsetans sé ætlað að róa orkumarkaðinn og draga úr efasemdum samherja Bandaríkjanna. Um tuttugu þeirra hafa heitið liðsinni við að tryggja siglingar um Hormússund. Um það bil tuttugu prósent flutninga með hráolíu og fljótandi gas fer um sundið á friðartímum. Eldsneytisverð hefur hækkað verulega vegna lokunarinnar og verðbólguuggur vex eftir því sem stríðið dregst á langinn. Mohammad Baqer Qalibaf, forseti íranska þingsins, varaði við óafturkræfum skemmdum á mikilvægum innviðum í Mið-Austurlöndum verði ráðist á orkuver landsins. Í færslu á samfélagsmiðlinum X sagði hann mikilvæga innviði, orkuinnviði og olíuvinnslustöðvar, verða lögmæt skotmörk. „Og verða fyrir óafturkræfum skemmdum og verð á olíu verður hátt í langan tíma,“ sagði Qalibaf í færslunni. Íranar skotið rúmlega 400 eldflaugum á Ísrael Loftvarnarflautur glumdu í Jerúsalem í morgun en um það bil 200 særðust, þar af ellefu alvarlega, í eldflaugaárásum Írana á tvo bæi í suðurhluta Ísraels í nótt. Ísraelsher gerði umfangsmiklar árásir á írönsku höfuðborgina Tehran nokkrum klukkustundum síðar. Ísraelsher segir Írana hafa skotið rúmlega fjögur hundruð eldflaugum á Ísrael síðan átökin byrjuðu fyrir þremur vikum. Loftvarnarkerfi hafi stöðvað um 92 prósent þeirra. Benjamin Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir árásir Írana síðustu sólarhringa sanna að heiminum stafi ógn af þeim. „Síðustu 48 sólarhringa hafa Íranar beint skotmarki sínu að almenningi. Sem betur fer var enginn drepinn en það er vegna heppni, ekki ásetnings þeirra. Þeirra ásetningur er að myrða almenna borgara.“ Ísrael og Bandaríkin hafi unnið í sameiningu fyrir allan heiminn. „Og það er tími kominn til þess að fleiri þjóðarleiðtogar gangi til liðs við okkur. Einhverjir eru að færa sig í þátt átt en fleiri þurfa að fylgja.“ Án Internets í 23 daga Rauði hálfmáninn í Íran segir rúmlega 81 þúsund borgaralega innviði í landinu hafa verið skemmda. Sjúkrahús, skólar, sjúkrabílar og hjálparstarfsmenn hafi orðið fyrir árásum og það sé skýrt brot á alþjóðlegum mannúðarlögum og Genfarsáttmálanum. Íranska heilbrigðisráðuneytið segir yfir 1.500 manns hafa verið drepna frá upphafi stríðsins fyrir þremur vikum, minnst 200 þeirra undir átján ára aldri. Hið minnsta 21 þúsund hefur særst eða örkumlast í árásum, að sögn ráðuneytisins. Ekkert fjölmiðlafrelsi er í Íran og alþjóðlegir fjölmiðlar hafa takmarkaðan aðgang að landinu. Stjórnvöld klippa reglulega á samband landsins við umheiminn með því að slökkva á Internetinu. Samkvæmt NetBlocks, óháðum eftirlitshópi sem fylgist með netumferð í heiminum, hafa Íranar verið án Internets í 528 klukkustundir eða 23. Dýrt getur verið að eiga samskipti. Sumir nota Starlink eða aðrar samskiptaleiðir. Þeir sem hafa ekki aðgang að þeim leiðum eru einangraðir, ekki aðeins frá umheiminum heldur eiga þeir einnig erfiðara með að eiga samskipti sín á milli. Án Internetsins er erfiðara fyrir íbúa til dæmis að skipuleggja mótmælaaðgerðir.

Share this article