- What: A man was arrested for threatening someone with a knife
- Impact: No direct impact on IT security or regular users
Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 10 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Handtekinn fyrir að hóta manni með heygaffli Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Lögreglustöðin á Akureyri. RÚV / Kristófer Óli Birkisson Karlmaður var handtekinn á Akureyri í gærkvöldi fyrir að hóta öðrum manni með heygaffli. Þetta staðfestir varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra í samtali við fréttastofu. Andri Freyr Sveinsson varðstjóri segir að manninum hafi verið sleppt að lokinni skýrslutöku og að málið sé í hefðbundnu rannsóknarferli. Fyrir 8 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Írland Írska lögreglan leitar manns í tengslum við hvarf Jóns Þrastar Írska lögreglan leitar manns í tengslum við hvarf Jóns Þrastar Jónssonar í Dyflinni 2019. Maðurinn er búsettur í Bretlandi en hefur hlotið dóm á Íslandi fyrir heimilisofbeldi. Fyrir 20 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Marta Rut efst hjá Framsókn í Hveragerði Framsóknarflokkurinn hefur samþykkt lista fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Nýtt fólk er í efstu sætum. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Handbolti Strákarnir taka yfir Magdeburg á HM í janúar Það er orðið staðfest að Íslenska karlalandsliðið í handbolta mun spila leiki sína í riðlakeppni HM í janúar í Magdeburg. Þetta staðfesti alþjóða handknattleikssambandið, IHF, í gær. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Iceguys-ævintýrið endar sem kvikmynd Tökur á kvikmynd um drengjahljómsveitina Iceguys hefjast í vor og verður það lokahnykkurinn á þessu magnaða ævintýri. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Ríkissaksóknari krefst frekari rannsóknar í máli þriggja barna á Múlaborg Ríkissaksóknari hefur tekið afstöðu til fimm kærumála af sex vegna meintra brota gegn börnum á leikskólanum Múlaborg. Þar af hefur hann fellt þrjár ákvarðanir úr gildi og gert lögreglu og héraðssaksóknara að rannsaka málin betur. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Einn alvarlega slasaður og annar talsvert slasaður Þrír voru fluttir á slysdeild eftir sprenginguna í húsnæði Fóðurblöndunnar í Reykjavík í morgun. Einn er alvarlega slasaður og annar talsvert slasaður. Allt tiltækt slökkvilið og nær allir tiltækir lögreglumenn voru sendir á vettvang. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Þrír fluttir á slysadeild eftir sprengingu Sprenging varð í atvinnuhúsnæði í Korngörðum í Reykjavík á áttunda tímanum í morgun. Þrír voru fluttir á sjúkrahús. Lögregla biður fólk að halda sig fjarri. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Myndlist „Það er mjög mikilvægt að falla fyrir freistingum“ Dómur nefnist verk Finns Arnars Arnarsonar í hvelfingu Ásmundarsafns. Hann dvaldi í tjaldi í safninu á meðan hann vann að verkinu sem fjallar meðal annars um karlmennsku og hlutverk okkar í jarðvistinni. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Mette-Marit segir Epstein hafa ráðskast með sig og blekkt Mette-Marit krónprinsessa Noregs segir kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein hafa vafið henni um fingur sér, blekkt hana og að lokum látið henni líða illa. Hún kveðst sjá eftir kynnum sínum við hann en hugur hennar sé hjá fórnarlömbum hans. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Þegar sýklalyfin hætta að virka Sýklalyf breyttu læknisfræði og björguðu milljónum mannslífa, en aukin notkun þeirra hefur leitt til vaxandi ónæmis baktería. Núorðið er sýklalyfjaónæmi talið ein helsta ógn við lýðheilsu á heimsvísu, samkvæmt Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Frjálsar HM í dag: Aníta er mætt aftur en nú í annarri grein HM í frjálsíþróttum innanhúss hefst í dag. Mótið fer fram í Póllandi og Ísland á þrjá keppendur á mótinu. Hlaupakonan Aníta Hinriksdóttir snýr aftur á stórmót, nú í annarri vegalengd. Sýnt verður frá keppninni á RÚV 2. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður „Ekki dagurinn til að fara á milli staða að nauðsynjalausu“ Suðvestan hvassviðri eða stormur með dimmum éljum gengur yfir stóran hluta landsins í dag. Búið er að aflýsa nær öllu millilandaflugi í dag. Margir vegir eru ófærir og víða útlit fyrir slæmt ferðaveður í dag. Lögreglan á Norðurlandi vestra hvetur fólk til að fara ekki milli staða að nauðsynjalausu. FRÉTTAVAKT Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál Starfshópur um nýtt húsnæðislánakerfi tekur til starfa Starfshópi um nýtt húsnæðislánakerfi er ætlað að rýna í hvort breyta þurfi löggjöf um fasteignalán. Formaður hópsins segir það mikla áskorun og ráðherra segir vaxtadómana hafa undirstrikað mikilvægi gagnsærra húsnæðislánakerfis. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Heimir: „Óskynsamlegt að hoppa frá þegar við erum búnir að vinna skítavinnuna“ Heimir Hallgrímsson þjálfari írska karlalandsliðsins í fótbolta hlakkar til framhaldsins. Hann verður þjálfari liðsins á EM 2028 á heimavelli. Hann segir Íra hafa ólma viljað skrifa undir áður en umspilsleikir um HM 2026 færu fram. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Nýr samningur sagður marka nýja gullöld í samskiptum Bandaríkjanna og Japans Japanir munu á næstu árum fjárfesta stórum í Bandaríkjunum meðal annars í orkuinnviðum og iðnaði. Leiðtogar ríkjanna tilkynntu um samning þess efnis eftir fund í Washington. Hann er sagður marka leið að nýrri gullöld samvinnu þeirra. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi NASA vonast til að leggja í ferð umhverfis tunglið snemma í apríl Bjartsýni ríkir innan geimferðastofnunar Bandaríkjanna um að loks verði hægt að senda mannað far umhverfis tunglið snemma í apríl. Bilanir í búnaði skotflaugarinnar hafa tafið ferðina talsvert. Viðgerð er lokið og því allt talið til reiðu. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranir halda áfram atlögum að nágrannaríkjunum Markús Þ. Þórhallsson Ísraelsher hóf stórfelldar loftárásir á Teheran, höfuðborg Írans í morgun. Stjórnvöld í Kúveit, Sádi Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum segja loftvarnarkerfi hafa stöðvað eldflauga- og drónaárásir frá Íran. Ísraelskir hermenn rannsaka leifar íranskrar eldflaugar sem féll nærri Gólan-hæðum. EPA / ATEF SAFADI Brak úr íranskri eldflaug kveikti eld í vöruhúsi í Barein, samkvæmt upplýsingum innanríkisráðuneytisins. Loftvarnarflautur ómuðu víða um löndin öll. Olíuhreinsistöðvar í Sádi Arabíu og Kúveit skemmdust í drónaárásum á fimmtudag og á miðvikudag varð mikið tjón í árás Írana á stærstu gasdreifingarstöð heims, í Katar. Írönsk yfirvöld sögðu þá atlögu í hefndarskyni fyrir loftárásir Ísraelshers á jarðgasvinnslustöð sína við Persaflóa. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Sameinuðu arabísku furstadæmin Trump-stjórnin semur um vopnasölu til ríkja í Mið-Austurlöndum Markús Þ. Þórhallsson Bandaríkin hafa samþykkt umfangsmikla vopnasölu til Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Wall Street Journal segir samninginn ná til sölu á Patriot-eldflaugakerfum og flutningaþyrlum. Patriot-eldflaugakerfi líkt og Bandaríkin selja Sameinuðu arabísku furstadæmunum. EPA / Robert Ghement Bandaríkin greindu frá milljarða dala vopnasölu til annarra ríkja í Mið-Austurlöndum í gær en tilkynntu viðskiptin við furstadæmin ekki sérstaklega þar sem þau eru framhald á fyrra samkomulagi. Stjórnvöld í furstadæmunum segjast hafa komið upp um starfsemi glæpasamtaka sem Íranir og Hezbollah í Líbanon fjármagna og stjórna. Samkvæmt fréttum ríkisfjölmiðilsins ógnuðu samtökin öryggi meðal annars með ástundun peningaþvættis og stuðningi við hryðjuverkastarfsemi. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Zelensky býst við að þríhliða friðarviðræðum verði fram haldið um helgina Úkraínuforseti kveðst bjartsýnn á framhald þríhliða friðarviðræðna á næstu dögum sem hafa tafist vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum. Hann boðar jafnframt tíðindi af öryggissamningum við ríkin við Persaflóa. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Fjórir Palestínumenn drepnir í Gaza-borg Markús Þ. Þórhallsson Almannavarnir Hamas á Gaza segja Ísraelsher hafa drepið fjóra Palestínumenn í tveimur aðskildum árásum í Gaza-borg. Tjaldbúðir Palestínumanna á vergangi á strandlengjunni við Gazaborg. EPA / MOHAMMED SABER Ísraelsher segir í yfirlýsingu að mennirnir hafi verið þekktir hryðjuverkamenn og því hafi verið ráðist til atlögu gegn þeim. Frá því að Hamas-hreyfingin og Ísraelsríki undirrituðu vopnahléssamkomulag í október hefur Ísraelsher drepið yfir 650 Palestínumenn, helmingurinn er konur og börn samkvæmt upplýsingum heilbrigðisyfirvalda á Gaza. 20. mars 2026 kl. 1:23ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Netanjahú staðhæfir að Íran sé á barmi tortímingar og stríðinu ljúki senn Forsætisráðherra Ísraels segir að árásarstríðinu gegn Íran ljúki senn með fullum sigri, landið sé að hrynja og vopnabúr þess ónýtt. Jafnframt væru komnir brestir í klerkastjórnina. Árásir Írana á olíuinnviði nágrannaríkja hafa valdið verðhækkunum. 20. mars 2026 kl. 0:22INNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Rýmingu og óvissustigi vegna snjóflóðahættu aflétt Markús Þ. Þórhallsson Rýmingu og óvissustigi vegna snjóflóðahættu hefur verið aflétt á norðanverðum Vestfjörðum og Norðurlandi eftir að kólnaði og frysti að afloknum hlýindum. Mörg snjóflóð féllu á Vestfjörðum og Norðurlandi. Ólöf Rún Erlendsdóttir Enn er óvissustig vegna hættu á krapaflóðum á sunnanverðum Vestfjörðum samkvæmt upplýsingum á vef Veðurstofu Íslands. Nokkur lítil krapaflóð féllu þar í dag. Dregið hefur úr hættunni eftir að kólnaði en áfram er eitthvað vatn í farvegum. Mörg snjóflóð féllu á norðanverðum Vestfjörðum og Norðurlandi í hlýindunum. 19. mars 2026 kl. 23:52INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Tvennt flutt með þyrlu á Landspítala eftir árekstur í Ölfusi Markús Þ. Þórhallsson Tvennt var flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann í Fossvogi til aðhlynningar eftir að tveir bílar skullu saman á Eyrarbakkavegi við Hraun í Ölfusi. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til vegna umferðarslyss í Ölfusi. RÚV / Bragi Valgeirsson Einn var fluttur með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Varðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi segir ekki talið að fólkið hafi slasast mikið. Tilkynning barst um klukka