Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

N1 og Landsbankinn bætast í hluthafahóp Eyjaganga

  • What: Infrastructure development project for Eyjagöngum
  • Impact: Local community and regional connectivity
Read Full Article →

Markmið Eyjaganga er að draga úr óvissu varðandi framkvæmdakostnað á gerð jarðganga milli lands og Heimaeyjar.RÚV / Ólöf Ragnarsdóttir N1 og Landsbankinn hafa bæst í hóp hluthafa í Eyjagöngum ehf. Í tilkynningu segir að verkefnið hafi tekið stórt skref fram á við með innkomunni. Íslandsbanki var þegar hluthafi í félaginu og í tilkynningu segir að aðkoma bankanna tveggja sé sérstaklega jákvæð, þar sem þeir hafi verið lykilaðilar í fjármögnun Hvalfjarðarganga á sínum tíma. Þá marki aðkoma N1 tímamót þar sem fyrirtækið sjái mikil tækifæri í uppbyggingu á Suðurlandi. Til stendur að hefja rannsóknarboranir til að kanna möguleika á fastri vegtengingu milli Vestmannaeyja og meginlandsins í næsta mánuði.

Share this article