Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Nýr flugvöllur opnaður á Grænlandi

Read Full Article →

Nýr flugvöllur var formlega opnaður í bænum Qaqortoq á suðurhluta Grænlands í morgun. Áður var aðeins hægt að komast til bæjarins á bát eða þyrlu. Flugvöllurinn leysir af hólmi flugvöllinn í Narsarsuaq sem hefur verið lokað. Hátíðarstemning var á nýja flugvellinum við opnunina. Þá hafði hópur fólks tekið sér stöðu til að sjá fyrstu lendinguna. Fyrstu farþegarnir sem innrituðu sig í flug í morgun voru Laila og Paalu Kuitse sem voru á leið til Nuuk að heimsækja barnabarn sitt. „Við höfum beðið í 40 ár eftir að flugstöðin verði opnuð og við erum því mjög glöð,“ sögðu þau í kór við KNR , ríkisútvarp Grænlands, í morgun. Samgönguyfirvöld gáfu grænt ljós á öryggismál flugvallarins seint í gærkvöld. Leyfið er þó háð þeim skilyrðum til að byrja með að tvær flugvélar megi lenda á klukkustund og að Air Greenland verði eina flugfélagið sem verði heimilt að nota hann. Skilyrðin verða rýmkuð með tímanum. Air Greenland ætlar bjóða upp á tvær ferðir á dag milli Nuuk og Qaqortoq árið um kring og fleiri ferðir yfir sumartímann. Frá júní verður hægt að fljúga með Icelandair frá Keflavík til bæjarins.

Share this article