Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ísland og Noregur staðfesta aðild að gervihnattakerfum Evrópusambandsins

Read Full Article →

Ísland og Noregur fá aðgang að tveimur áætlunum Evrópusambandsins um fjarskipti um gervihnetti, sem tryggja eiga örugg fjarskipti fyrir stjórnvöld og stjórnendur innviða. Aðild ríkjanna tveggja var staðfest í Brussel í dag, á fundi með Andrius Kubilius, sem fer með varnarmál og málefni geimsins innan framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra Íslands gagnvart Evrópusambandinu og Cecilie Myrseth viðskiptaráðherra Noregs skrifuðu undir samninginn fyrir hönd stjórnvalda á Íslandi og í Noregi. Viðræður um þessa samninga hófust snemma árs 2024 að undirlagi Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, þáverandi ráðherra háskóla- iðnaðar og nýsköpunar; markmiðið var að tryggja aðgang að öruggu og lokuðu fjarskiptakerfi meðal annars fyrir lögreglu og viðbragðsaðila, en einnig fyrir samskipti sem gætu snert öryggismál og jafnvel landvarnir, eins og fram kom í frétt RÚV sem skrifuð var á þeim tíma. „Aðild Íslands að þessum evrópsku áætlunum um öruggar fjarskiptatengingar um gervihnetti er stórt skref og mun renna styrkari stoðum undir fjarskiptaöryggi Íslandi,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra í tilkynningu sem ráðuneytið sendi frá sér í morgun. „Virk þátttaka okkar eflir stafrænt fullveldi Íslandi og styður við markmið okkar um að auka seiglu innviða hér á landi.“ Tvö aðskilin kerfi Íslensk og norsk stjórnvöld fá með þessum samningi aðild að tveimur áætlunum; annars vegar um fjarskiptakerfi opinberra aðila ( GOVSATCOM ) sem snýst um að setja á laggirnar miðlæga stjórnstöð sem tengir saman gervihnetti sem aðildarríki Evrópusambandið eiga, og á að fullnýta afkastagetu þeirra. „Hins vegar [er] aðild að áætlun ESB um öruggt fjarskiptakerfi um gervihnetti, Union Secure Connectivity Programme ( IRIS2 ), sem hófst árið 2023 og er mun stærra verkefni sem felur í sér uppbyggingu nýs kerfis frá grunni. Það er hannað sem Multi-Orbit Constellation (fjölbrautakerfi), sem er lykilatriði fyrir Ísland vegna betri útbreiðslu sem næst með slíkri hönnun kerfis. Útbreiðslusvæði IRIS2 mun ná norður fyrir Ísland. Hugsanlega verður ákveðið síðar að bæta við hnöttum sem ná útbreiðslu enn norðar, en þátttaka í slíkri viðbót verður valkvæð. Gert er ráð fyrir að IRIS2 kerfið verði orðið starfhæft árið 2030,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins. Getur lagt til aðstöðu eða tæknibúnað Samningurinn sem staðfestur var í morgun gerir ráð fyrir aðild Íslands að báðum kerfum Evrópusambandsins, GOVSATCOM og IRIS2. Auk þess er gert ráð fyrir þeim möguleika að íslensk stjórnvöld geti stutt við þessi verkefni, mögulega með því að koma upp jarðstöðvum fyrir fjarskiptakerfin eða leggja til aðstöðu fyrir slíkan búnað. Ísland og Noregur fá ekki fulla aðild að stjórnkerfi þessara áætlana, en fá áheyrnarfulltrúa í nefndum og vinnuhópum. Samanlagðar greiðslur vegna aðildar Íslands eru áætlaðar um 127 milljónir króna á þessu ári og eitlítið minna á næsta ári, samkvæmt upplýsingum innviðaráðuneytisins.

Share this article