Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
LOW News Viðskiptablaðið

Tíma­bundið neyðarálag lagt á innan­lands­flutninga

  • What: Eimskip imposes time-bound surcharge on domestic transport
  • Impact: May affect shipping costs for businesses and consumers
Read Full Article →

Eim­skip hefur ákveðið að leggja tíma­bundið neyðarálag á innan­lands­flutninga á Ís­landi vegna mikillar hækkunar á elds­neytis­verði í kjölfar áfram­haldandi átaka í Miðaustur­löndum. Sam­kvæmt til­kynningu félagsins nemur neyðarálagið 1,5% af flutnings­gjaldi og tekur það gildi 25. mars. Það leggst á allan flutning frá og með þeim degi. Þá segir að gjaldið verði endur­metið 1. og 15. dag hvers mánaðar á meðan ástandið varir. Á gildistíma neyðarálagsins muni al­mennt olíuálag ekki taka breytingum. Þetta úrræði er nauðsynlegt til að mæta verulega hækkuðum kostnaði við eldsneytiskaup sem hefur áhrif á reksturinn næstu vikurnar, segir í tilkynningu Eimskips Til­kynningin kemur í kjölfar þess að Eim­skip hafði áður sagt að félagið væri að meta stöðuna frá degi til dags vegna snarprar hækkunar á olíu­verði. Í sam­tali við Við­skipta­blaðið um miðjan mars sagði Hilmar Pétur Val­garðs­son, fram­kvæmda­stjóri rekstrar­sviðs Eim­skips, að félagið væri að sjá 40 til 50% hækkun á þeirri olíu sem það kaupir, sem hefði um­tals­verð bein áhrif á reksturinn. Hilmar benti þá á að Eim­skip væri stór kaupandi að skipa­olíu, svart­olíu og dísilolíu og að hækkandi olíu­verð hefði því aug­ljós áhrif á af­komu félagsins. Hann sagði jafn­framt að skipafélög er­lendis hefðu þegar brugðist við með sér­stöku neyðarálagi á við­skipta­vini og að Eim­skip væri að greina þá stöðu. Sjá einnig Eim­skip metur stöðuna dag frá degi Eim­skip hefur hingað til varið sig gegn al­mennum sveiflum í elds­neytis­verði með svo­nefndu olíuálagi, sem birt er opin­ber­lega mánaðar­lega og greitt af við­skipta­vinum. Með því fyrir­komu­lagi tekur félagið mið af markaðsaðstæðum hverju sinni og við­skipta­vinir njóta einnig lækkana þegar olíu­verð fellur. Nú telur félagið hins vegar að hækkunin sé svo skörp að grípa þurfi til sér­staks tíma­bundins álags til viðbótar. Í fyrri um­fjöllun Við­skipta­blaðsins kom einnig fram að hækkandi olíu­verð hefði áhrif á skipa­flutninga til og frá Ís­landi en að stærsta áhyggju­efnið væri ef átökin í Miðaustur­löndum drægjust á langinn. Hilmar sagði þá að birgjar félagsins hefðu ekki gefið til kynna að skortur á olíu væri yfir­vofandi heldur væri megin­óvissan hversu lang­vinn áhrifin yrðu. Með ákvörðuninni er Eim­skip því orðið eitt af þeim félögum sem bregðast beint við hækkandi orku­verði með sér­stöku álagi á við­skipta­vini, á meðan óvissa á alþjóð­legum orkumörkuðum helst mikil.

Share this article