- What: Fuel supply status in Iceland is described as good.
- Impact: No immediate impact on fuel availability in Iceland.
Forstjóri Skeljungs segir ekki rétt að birgðastaða þotueldsneytis á Íslandi sé lág, þótt stjórnvöld eigi ekki neyðarbirgðir. Lokun Hormússunds gæti haft áhrif á flugsamgöngur í Evrópu á allra næstu vikum, samkvæmt umfjöllun AFP í morgun. Þar er sérstaklega tekið fram að birgðastaða þotueldsneytis á Íslandi sé lág. Aðspurður segir Þórður Guðjónsson, forstjóri Skeljungs, sem eru næststærstir í flugvélaeldsneyti hérlendis á eftir BP, að þetta sé ekki rétt. „Það kom stórt olíuskip til landsins í lok mars þannig staða þotueldsneytisbirgða á Íslandi ætti að vera nokkuð góð. Það kemur skip eftir sirka tíu daga til Helguvíkur aftur með þotueldsneyti og birgðarflutningar til Íslands eru með nokkuð reglulegum og góðum hætti. Það er enginn skortur fyrirhugaður á Íslandi eins og staðan er núna,“ segir Þórður. Engin skip á leið frá Persaflóa til Evrópu BP þjónustar millilandaflug Icelandair og er því langstærst í þotueldsneyti á landinu. Þórður segir að sending BP frá lok mars ætti að duga minnst sex til átta vikur frá þeim tíma og Skeljungur eigi von á tveimur sendingum. Hann telji því ekki ástæðu til að hafa áhyggjur af stöðunni. „En það má ekkert útaf bregða því að sjálfsögðu er þetta að fara að hafa gríðarleg áhrif í öllum heiminum, sérstaklega í Asíu, en er farið að hafa slæmar afleiðingar inn í Evrópu líka. Meðaltími skips úr Persaflóa og inn til Evrópu eru sirka 40 til 45 dagar þannig að skorturinn fer að byrja núna. Núna er allt stopp. Það eru engin skip á leiðinni frá Persaflóa til Evrópu.“ Ef ekkert breytist hvenær myndi það þá fara að hafa áhrif hér á Íslandi? „Sko ef BP lendir í einhverju veseni, sem ég er alls ekki að segja að þeir geri því BP er alheimsrisi í þessu og á olíu út um allan heim, þá ættu þeir að vera í fínu lagi. En ef þeir koma ekki inn með magn einhvern tímann fyrir lok maí þá gæti staðan farið að vera tvísýn.“