- What: Debate over proposed changes to electricity laws in Iceland
- Impact: Landowners express concerns about property rights
Innlent | Morgunblaðið | 27.3.2026 | 10:40 Réttindi landeigenda skert Landeigendur eru margir hverjir ósáttir við frumvarp umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra til breytinga á raforkulögum. mbl.is/Sigurður Bogi Setja bókamerki Hagsmunasamtök landeigenda vegna Holtavörðuheiðarlínu 3 telja að þær breytingar sem boðaðar eru á raforkulögum feli í sér verulega skerðingu á réttindum landeigenda, einkum afnám banns við því að framkvæmdir hefjist áður en eignarnám eða samkomulag um bætur liggur fyrir. Það stangist jafnframt á við stjórnarskrá landsins. Þetta kemur m.a. fram í umsögn samtakanna í samráðsgátt um frumvarp umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Jóhanns Páls Jóhannssonar. Meginefni breytinga á raforkulögum er að flýta uppbyggingu raforkuinnviða og einfalda gildandi regluverk. Alls hafa borist 23 umsagnir við frumvarpið. Í greinargerð með frumvarpinu segir m.a. að uppbygging flutnings- og dreifikerfis raforku á Íslandi hafi á undanförnum árum tafist verulega, oft vegna ágreinings um eignarnám, umráðatöku og fjárhæð eignarnámsbóta. Í núverandi lögum séu ströng skilyrði fyrir upphafi framkvæmda og dregið úr fyrirsjáanleika. Skapar hættulegt fordæmi Umrædd hagsmunasamtök voru stofnuð vegna áforma Landsnets um að leggja nýja Holtavörðuheiðarlínu gegnum byggðina í Húnaþingi vestra og Húnabyggð, á milli tengivirkis á heiðinni og Blönduvirkjunar. Vildu landeigendur, einkum í Húnaþingi vestra, fara með línuna um hálendið. Hagsmunasamtökin segjast skilja mikilvægi þess að á landinu sé öflugt og öruggt raforkukerfi og að uppbygging raforkuinnviða sé skilvirk. Slík uppbygging verði þó ávallt að fara fram í fullu samræmi við stjórnarskrárvarin réttindi landeigenda og sveitarfélaga, og í samræmi við þær meginreglur sem liggi til grundvallar lýðræðislegri stjórnsýslu. „Það er sérstakt áhyggjuefni að áform til lagasetningar munu gera það auðveldara fyrir ríkið að ganga á stjórnarskrárvarinn eignarrétt íbúa. Ef svo fer er verið að veita ríkinu, fyrirtækjum þess og stofnunum yfirburðastöðu gagnvart almenningi og skapa hættulegt fordæmi fyrir framtíðina. Fyrirætlanir varðandi það að hraða framþróun með því að skerða réttindi borgaranna eru ekki einungis vafasamar heldur eru þær beinlínis hættulegar,“ segir m.a. í umsögn landeigendanna. Samtökin telja að núgildandi lög tryggi réttaröryggi, gagnsæi og vandaða málsmeðferð og hafi það hlutverk að tryggja að ákvörðun um umfangsmiklar framkvæmdir sé tekin á grundvelli málefnalegs samtals og í sátt við þá sem byggja og nýta landið. „Friðhelgi eignarréttar, sjálfstjórn sveitarfélaga og réttur almennings til aðkomu að umhverfis- og skipulagsmálum eru ekki hindranir sem skuli ryðja úr vegi heldur hornsteinar lýðræðislegs réttarríkis,“ segir m.a. í umsögninni. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Ekki rökstuddur grunur fyrir broti Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Virtur blaðamaður hrósar Íslendingnum í hástert Réttindi landeigenda skert Eyþór Fannar skipar oddvitasætið Umræðan Hallarekstur stöðvaður Fullveldi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fækka á stöðugildum hjá ríkinu um 1% Skúli og aðrir stjórnarmenn sýknaðir Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Myndskeið: Krefjandi aðstæður á brautinni Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina „Þú ert alveg á réttri leið“ Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Stórfelld árleg hækkun gjalda Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Eldur kviknaði í sumarbústað í Kjósinni Meirihluti framlínufólks undir gríðarlegu álagi 830 milljarða halli á ríkissjóði frá 2019 Bubbi spáir hruni Spotify Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Fastur í snjó á ónýtum sumardekkjum „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Nýjast á mbl.is » Ekki rökstuddur grunur fyrir broti Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Virtur blaðamaður hrósar Íslendingnum í hástert Réttindi landeigenda skert Eyþór Fannar skipar oddvitasætið Umræðan Hallarekstur stöðvaður Fullveldi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Meirihluti framlínufólks undir gríðarlegu álagi Fækka á stöðugildum hjá ríkinu um 1% Úthugsuð árás Bandaríkjanna Stórfelld árleg hækkun gjalda Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina „Þú ert alveg á réttri leið“ Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Stórfelld árleg hækkun gjalda Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Eldur kviknaði í sumarbústað í Kjósinni Meirihluti framlínufólks undir gríðarlegu álagi 830 milljarða halli á ríkissjóði frá 2019 Bubbi spáir hruni Spotify Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Fastur í snjó á ónýtum sumardekkjum „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“