Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Hlýtur að vera hægt að gera betur í samningunum við landeigendur“

Read Full Article →

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsáðherra, kynnti nýverið áform um lagasetningu um uppbyggingu raforkuinnviða og einföldun regluverks. Ástæðan er sú að framkvæmdir vegna dreifikerfis raforku hafa oft tafist vegna ágreinings við landeigendur um eignarnám og fjárhæð eignarnámsbóta, meðal annars við Hvammsvirkjun. Lagabreytingin á að tryggja að framkvæmdir geti hafist samhliða samningaviðræðum við landeigendur. Markmið laganna er að hraða þjóðhagslega mikilvægum framvæmdum. Landeigandi í Norðurárdal er sleginn yfir áformum ráðherra. Telur raforkuna fara til erlendra fjárfesta Guðrún Sigurjónsdóttir er landeigandi í Norðurárdal og formaður Samtakanna Sól til framtíðar. Hún segir að landeigendum sé sífellt talin trú um að það sé þjóðhagslega hagkvæmt að fara í gegnum lönd þeirra með raflínur. Guðrún telur þó að stærstur hluti raforkunnar fari þó til erlendra fjárfesta. „Flestar raflínurnar, að minnsta kosti þessi Holtavörðulína sem gengur hér í gegn, hún fer beint niður á Grundartanga. Þarna eru erlendir fjárfestar sem ætla að vera með stóriðju.“ Guðrún segir að öll fjárfesting sé augljóslega ekki litin sömu augum. „Hugsum bara sem svo að maður standi frammi fyrir því að kaupa sér annaðhvort íbúð í bæ eða jörð úti á landi. Það er enginn að fara að ryðjast inn í íbúð hjá manni og segjast þurfa að nota rýmið með manni þar eins og er verið að gera, boða hér með þessu úti á landi.“ Vill hefja framkvæmdir án samninga við landeigendur Á nýafstöðnu þingi Samtaka iðnaðarins sagði ráðherra að það væri óviðunandi og óþolandi að þjóðhagslega mikilvægar framkvæmdir tefjist um mörg ár vegna langvarandi ágreinings við landeigendur. Því vilji hann fella burt kröfu um að samningar hafi náðst við landeigendur um eignarnám áður en framkvæmdir hefjist. Landeigendur eru að skoða rétt sinn. Guðrún segir þetta harkalega fram gengið af ráðherra. „Og viljum svosem meina að þetta sé bara ákaflega vanhugsað. Ég held að hann hafi slegið mjög marga með þessum ummælum sínum. Og ef þetta er svona gríðarlega mikið þjóðhagslegt mál, þá hlýtur að vera hægt að gera betur í samningunum við landeigendur.“ Áform ráðherra eru nú til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.

Share this article