Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Segist skilja áhyggjur landeigenda

Read Full Article →

Frumvarpsdrög um breytingar á raforkulögum voru birt í samráðsgátt stjórnvalda í byrjun mánaðar. Markmið þeirra er að flýta uppbyggingu raforkuvinnviða meðal annars með því að tryggja að ágreiningur um bótafjárhæð eða lögmæti eignarnáms verði ekki til þess að framkvæmdir frestist. Landeigendur hafa lýst áhyggjum af þessum áformum. Þeir óttast að verið sé að fórna hagsmunum þeirra fyrir hagsmuni stóriðjunnar. Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis- og orkumálaráðherra segir þvert á móti að verið sé að tryggja raforkudreifingu á milli landshluta. „Þannig að þetta skiptir gríðarlegu máli. Þetta er byggðarmál en líka umhverfismál. Vegna þess að það er mikil sóun á náttúruauðlindum að orka sem þegar er búið að afla með virkjanaframkvæmdum, með tilheyrandi umhverfisspjöllum og svo framvegis , að sú orka sitji svo föst í stað þess að vera nýtt til orkuskipta eða til verðmætasköpunar. Þetta snýst um það,“ segir Jóhann. Hann skilji þó áhyggjur landeigenda. „Ég hef fullan skilning á því að fólk hrökkvi svolítið við þegar rætt er um þessi mál. En þá er mikilvægt að hafa í huga að það stendur ekki til að raska með neinum hætti eignarréttinum á Íslandi. Hann er friðhelgur samkvæmt stjórnarskrá . Sönnunarbyrðin er alltaf á stjórnvöldum. Við þurfum að gæta okkar. Fullar bætur þurfa að koma fyrir og við þurfum að sýna fram á almenningsþörf. Þessu verður ekkert breytt. Það verður ekkert hvikað frá þessu. Það sem skiptir hins vegar máli að það sé fyrirsjáanleika þegar kemur að innviðaframkvæmdum. Það gildir um fjarskiptainnviði, það gildir um vegagerð og það gildir svo sannarlega um raforkuinnviði og þess vegna erum við að leggja þetta til,“ segir Jóhann.

Share this article