Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Boðar róttækar breytingar á raforkulögum

Read Full Article →

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra segir óviðunandi og óþolandi að að þjóðhagslega mikilvægar framkvæmdir tefjist um mörg ár vegna ágreinings við landeigendur. Hann boðar einfaldar en róttækar breytingar á raforkulögum. Fella burt kröfu um samkomulag eða eignanám við landeigendur „Við ætlum að fella burt kröfuna um að samkomulag hafi náðst eða eignarnám farið fram áður en framkvæmdir hefjast. Við ætlum að afnema þessa kröfu. Við verjum eignarréttindi landeigenda með eignarnámsbótum, ekki með því að gefa þeim einhvers konar neitunarvald gegn þjóðhagslegum framkvæmdum.“ Þetta sagði Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, á Iðnþingi sem Samtök iðnaðarins stóðu fyrir í dag. Hann segir að þessi nýju lagaáform þýði að framkvæmdir geti hafist samhliða samningaviðræðum um eignarnámsferli – og þar með stytt heildarframkvæmdatíma um marga mánuði og jafnvel ár. „Sem þýðir lægri fjármagnskostnaður, áreiðanlegri áætlanir og minni áhætta vegna verðbreytinga, til dæmis á efni og vinnuafli.“ Lagabreytingarnar verði óþægilegar og umdeildar Jóhann segir líklegt að þessar lagabreytingar verði bæði óþægilegar og umdeildar. „Ekki frekar en þær róttæku breytingar sem við erum að gera á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits á Íslandi. Ekki frekar en hagræðingaraðgerðirnar okkar, þar sem við erum að taka til í ríkisrekstrinum, þar sem við erum að fækka ríkisstofnunum um 10% á þriggja ára tímabili. Þetta er allt saman umdeilt, sumt er óþægilegt.“ Markmiðið með lagabreytingunni sé skýrt. „Einfaldara regluverk, sjálfbær ríkisfjármál, og aukin samkeppnishæfni, kröftugri verðmætasköpun á Íslandi.“

Share this article