Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Samþykkja lög um ein­földun leyfis­ferla

Read Full Article →

Frumvarp umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um breytingar á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á svið umhverfis- og orkumála var samþykkt á Alþingi í dag. Frumvarpið var samþykkt með 46 atkvæðum en einn þingmaður, Halla Hrund Logadóttir, sat hjá við atkvæðagreiðslunar og 16 þingmenn voru fjarverandi. Um er að ræða breytingar á 12 lagabálkum sem miða að því að samþætta og samræma leyfisveitingar, kæruleiðir og tengdar ákvarðanir til að stytta heildartíma afgreiðsluferla og að regluverk styðji betur skilvirka, vandaða, aðgengilega og gagnsæja stjórnsýslu, að því er segir í frumvarpinu. Einnig er innleidd hugmyndafræði um einn afgreiðslustað (e. one-stop shop). Sjá einnig Horft til verðmætasköpunar Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fagnar áfanganum í færslu á samfélagsmiðlum. Lagabreytingarnar snúi meðal annars að því að létta á umhverfismatsskilyrðum vegna hagnýtingar jarðhita til hitaveitu auk þess sem hætt verði að gera kröfu um starfsleyfi vegna hverrar borframkvæmdar og umhverfismat vegna föngunar kolefnis frá jarðvarmavirkjunum. Þá sé verið að stytta ferla og fækka afgreiðslustöðum í stjórnsýslunni og veita Umhverfis- og orkustofnun víðtækar heimildir til þess að sameina afgreiðslu margra leyfa í eina leyfisveitingu. Liðkað sé fyrir fyrir rannsóknum vegna vindorkunýtingar á hafi og sjávarfallavirkjana utan netlaga og mælt fyrir um forgangsmeðferð verkefna í orkunýtingarflokki rammaáætlunarið. Loks eru heimildir ráðherra til þess að mæla fyrir um skráningarskyldu í stað starfsleyfa vegna atvinnustarfsemi útvíkkaðar.

Share this article