M Invest ehf., móðurfélag Iðnafls, hefur náð samkomulagi um kaup á Gólflögnum ehf., rótgrónu fyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði iðnaðar gólfefna. Iðnafl samanstendur af fyrirtækjunum Metatron og SS Gólf sem M Invest ehf. keypti árið 2023. Metatron sérhæfir sig í sölu, lagningu og viðhaldi á gervigrasi fyrir íþróttavelli og almenningssvæði ásamt flóðlýsingarkerfum keppnisvelli, æfingarvelli og stærri athafnarsvæði. SS Gólf sérhæfir sig í sölu og lagningu epoxy gólfa og annara iðnaðargólfefna. Sjá einnig Guðni Rafn og Ármann Andri kaupa Metatron Árið 2025 stofnaði Iðnafl Golfstofuna sem býður upp á garðagrös ásamt golfvallar flatir og teiga úr gervigrösum, sömu kerfi og þróuð voru fyrir TGL keppnina, sem Tiger Woods og Rory McIlroy fara fyrir. Á síðasta ári var einnig Iðnafl eignir, sem stundar útleigu á ýmsum tækjabúnaði, settar á fót. „Kaupin á Gólflögnum fellur vel að stefnu M Invest og Iðnafls samstæðunnar á markaði með þjónustu, sölu og lausnir á fyrirtækjamarkaði. Áhersla verður lögð á að þjónusta núverandi og nýja viðskiptavini samstæðunnar enn betur,“ segir Ármann Andri Einarsson , framkvæmdastjóri og annar eigenda Iðnafls. Gólflagnir ehf., sem bjóða upp á allar gerðir epoxy og polyurethane gólfefna, veltu 330 milljónum króna og högnuðust um 40 milljónir á árinu 2024, samkvæmt síðasta birta ársreikningi. Ársverk voru 11 á árinu 2024. Seljendur Gólfalagna eru Níels Steinar Jónsson, Magnús Valdimarsson, og Anna María Clausen. Níels Steinar átti 57% hlut í félaginu, Magnús 33% hlut og Anna María 10% hlut. M Invest ehf. er í eigu Guðna Rafns Eiríkssonar og Ármanns Andra Einarssonar. Guðni Rafn er eigandi Skakkaturns, umboðsaðila Apple á Íslandi sem rekur verslanir undir merkjum Eplis. Ármann Andri, framkvæmdastjóri Iðnafls, starfaði áður sem sérfræðingur í fyrirtækjaráðgjöf Arion banka á árunum 2014-2022. Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins, sem heimilaði viðskiptin í síðustu viku, segir að við rannsókn málsins hafi komið í ljós upplýsingar sem bentu til þess að samanlögð hlutdeild samrunaaðila í lagningu iðnaðargólfefna væri meiri en 20%. „Þó bentu nokkrir umsagnaraðilar á að aðgangshindranir inn á markað fyrir lagningu iðnaðargólfefna væru fremur litlar.“