Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hægt að bjóða upp á „Gullna golfhringinn“

  • What: Article discusses golf tourism in Iceland, including potential marketing strategies.
  • Impact: No security impact.
Read Full Article →

Stór hluti landsmanna spilar golf og fer þeim sífellt fjölgandi. Til viðbótar við Íslendinga sækja erlendir kylfingar sömuleiðis Ísland heim, en um 6 þúsund erlendir ferðamenn léku golf hér á landi árið 2025. Samkvæmt greiningu KPMG, sem fjallað er um í Viðskiptablaðinu sem kom út á miðvikudaginn, má gera ráð fyrir að ferðamennska tengd golfi velti um 800 milljónum króna árlega og eru gistinætur erlendra kylfinga um 15 þúsund. Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands, segir að gríðarleg tækifæri til staðar til að efla markaðssetningu á því sviði. Þannig mætti til að mynda markaðssetja Snæfellsnes, sem er með fimm golfvelli og hótel í fyrsta flokki í umhverfi sem státar óviðjafnanlegu landslagi. Hægt væri jafnvel að taka snúning á Gullna hringnum með „Golf circle“, eða Gullna golfhringinn, á ákveðnum svæðum um landið. „Þannig að þegar ég tala um golfið sem efnahagslegan drifkraft og tækifæri til vaxtar þá eru klúbbarnir að skapa fjöldann allan af störfum um land allt, sem eykur gistingar og lengir ferðamannatímabilið. Við vinnum markvisst að því að laða að erlenda gesti með pakkalausnum í samstarfi við hótel og flugfélög, fjárfesta í innviðum og bæta þjónustu,“ segir Hulda. Fréttin er hluti af lengri umfjöllun í /sem kom út á miðvikudaginn.

Share this article