Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Lengja íslenska golftímabilið

  • What: Icelandic golf company expands services
  • Impact: Business development in the golf industry
Read Full Article →

Eigendur Iðnafls, Guðni Rafn Eiríksson og Ármann Andri Einarsson, bíða nú spenntir eftir hlýju vori og góðu sumri svo að hægt verði að leggja gervigras fyrir golfklúbba og einkaaðila á Íslandi. Fyrirtæki þeirra, Golfstofan, sér um sölu og lagningu gervigraskerfa fyrir viðskiptavini en félagið er hluti af Iðnafli, sem samanstendur af fyrirtækjunum Metatron og SS Gólf, sem M Invest ehf. hefur keypt á undanförnum þremur árum. Kerfin sem Golfstofan notast við eru hönnuð og framleidd af bandaríska fyrirtækinu SYNLawn í samstarfi við TGL-kerfið, eða Tomorrow‘s Golf League, sem hóf göngu sína árið 2025. TGL er innanhússkeppni sem fer fram í SoFi Center í Flórída þar sem spilað er í þriggja manna liðum. Ármann segist hafa séð mikla eftirspurn eftir þjónustu Golfstofunnar frá bæði einstaklingum og vinnustöðum. Íslenskir golfklúbbar hafa einnig leitað til þeirra í von um að lengja golftímabilið og bæta aðstöðuna. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaði vikunnar . Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér .

Share this article