Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Aukinn áhugi kallar á uppbyggingu

Read Full Article →

Um 30 þúsund manns eru skráðir í golfklúbba á Íslandi og fer þeim hratt fjölgandi samkvæmt úttekt KPMG fyrir Golfsamband Íslands. Reikna má með að um 10% þjóðarinnar spili golf, hvort sem það er á golfvöllum eða í golfhermum og á æfingasvæðum. Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands, segir að hröð fjölgun síðustu ára hafi kallað á nýja stefnu með ferskari áherslum en ný stefna gildir til ársins 2030. Í dag sé golf orðið heilsársíþrótt þar sem klúbbarnir eru í aðstöðu til að halda úti starfsemi yfir vetratímann auk þess sem golfhermar hafa sífellt verið að sækja í sig veðrið. Golfhreyfingin hafi verið í sjálfbærnivegferð frá árinu 2021 þar sem áhersla er lögð á gæðastarf í þágu umhverfisins og samfélagsins í heild. Vellirnir séu vistvænir og mikill metnaður lagður í þá vinnu. Þá gætu golfvellir og fjölnota útivistarsvæði reynst sveitarfélögum heppilegur kostur til að veita íbúum aðgang að grænum svæðum. „Við viljum því sýna fram á hvernig við styrkjum samfélagið, með sýnilegum ávinningi og mælanlegum árangri,“ segir Hulda. Hún bendir sömuleiðis á jákvæð áhrif íþróttarinnar þegar kemur að lýðheilsu og möguleikann á tengslamyndun. „Við bjóðum fyrirtækjum og sveitarfélögum að taka þátt í þessari vegferð — saman getum við skapað mikla velsæld og um leið arðbæra og græna framtíð fyrir golf á Íslandi.“ Bent hefur verið á aðstöðuleysi og þörf á frekari uppbyggingu, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu þar sem þúsundir eru á biðlista. Hulda segir samtal nú eiga sér stað við sveitarfélögin um fjárfestingar í innviðum og íþróttamannvirkjum. Verkfræðistofan VSB fékk það hlutverk að útfæra hugmyndir um afreksmiðstöð golfhreyfingarinnar sem kynntar voru á Golfþingi sl. nóvember, en í framhaldinu verði mótaðar tillögur um samstarf fjármögnun og rekstrarform. „Með þessari uppbyggingu væri hægt að styrkja afreksstarf til muna og styðja enn betur við okkar fremstu kylfinga. Með 18 holu keppnisvelli væri þá einnig hægt að fjölga lausum rástímum á höfuðborgarsvæðinu til muna, með því að færa hluta mótahalds sambandsins á keppnisvöllinn. Þá væri einnig skapaður vettvangur fyrir alþjóðlegt mótahald hér á landi, bæði fyrir áhuga- og atvinnukylfinga,“ segir Hulda. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article