Innlent | mbl | 29.4.2026 | 13:11 65% aukning frá 2019 í golfinu Eggert Skúlason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Dagmál Skelfileg staða og engar aðgerðir Fara á örorku og upplifa sjálfsvígshugsanir „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Trufflan er ýmist elskuð og hötuð Þjálfunaraðstaða lögreglu stenst ekki samanburð » Fleiri tengdar fréttir Kylfingar sem eru skráðir í golfklúbba eru nú þrjátíu þúsund talsins og hefur fjölgað um 65% frá árinu 2019. Aukningin frá því í fyrra er um þrjú þúsund manns. Fyrir utan þessar tölur er svo hópur sem er að leika sér í golfi en ekki skráðir í klúbba. Forseti Golfsambands Íslands, Hulda Bjarnadóttir er gestur Dagmála í dag og ræðir um þessa miklu aukningu og þau gríðarlegu umsvif sem golfið hefur í för með sér. Hulda segir að stór fundur sem nýverið var haldinn af Golfklúbbi Reykjavíkur með frambjóðendum í höfuðborginni um málefni golfsins hafi greinilega opnað augu þess fólks. Í það minnsta fjögur framboð á höfuðborgarsvæðinu hafa nú lýst yfir vilja til fara í frekari uppbyggingu á aðstöðu fyrir kylfinga. Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík hefur lagt til að byggja golfvöll í Viðey og yrði það án ef magnaður völlur, á þeim sögufræga stað. Hún bendir á að þessi mikli fjöldi iðkenda veki mikla athygli erlendis en á Íslandi er nú 63 golfvellir og allt stefnir í að þeim fjölgi umtalsvert á næstu árum. Að hennar mati eru tækifærin mikil en á sama tíma eru biðlistarnir langir í golfklúbbum á höfuðborgarsvæðinu og álagið mikið. Hún segir ánægjulegt að sjá hversu mikill áhugi er meðal ungs fólks. „Ég er stoltust af þeirri tölu að unga fólkið sé á leiðinni í golfið. Því það eru framtíðar kylfingarnir okkar. Það var markmiðið okkar að ná líka í yngri iðkendur. Það er mesta fjölgunin í 18 til 25 ára hópnum,“ upplýsir Hulda. Víða eru uppi áform um uppbyggingu. Golfklúbburinn Leynir á Akranesi er að fara í uppbyggingu og ætla að bæta við níu holu velli og stækka sína aðstöðu. Að sama skapi nefnir hún Akureyri þar sem einnig er verið að ráðast í uppbygginu. Á Austurlandi segir hún uppi hugmyndir um uppbyggingu á Eiðum og svo mætti lengi telja. Vissulega eru þetta góð skref, en dugir þetta til. Biðlistarnir eru langir? „Já. Ef að veldisvöxturinn verður svona mikil. Frá 2019 þá er 65% aukning í hreyfingunni. Það er gríðarleg aukning. Það voru þrjú þúsund kylfingar núna í aukningu, bara á milli ára. Þannig að fólk skilji hvaða tölur eru þarna á bak við. Ég kíkti á 2008 og þá vorum við með átta þúsund kylfinga sem voru skráðir í golfklúbba. Þannig að núna í dag þrjátíu þúsund iðkendur og þetta er engin bóla, Eggert. Það er ekki hægt að segja það. Við vitum bara og sjáum. Ég er kannski ekki eins hissa því maður vissi hvaða gæði golfklúbbarnir höfðu. En þetta er eiginlega orðið of margt í dag til að geta farið inn og sinnt viðhaldi og gert klárt fyrir daginn eftir. Þetta er mjög mikið í samanburði við alla golfvelli úti í heimi. Þess vegna erum við núna að þrýsta á sveitarfélög. Viljið þið gjöra svo vel og sjá alla þessa biðlista, fólk hangir á húninum og vill komast inn en við getum ekki sinnt þessu,“ segir Hulda. Hún fer um víðan völl í viðtalinu og talar um möguleika Íslands til að reisa þjóðarleikvang fyrir golfíþróttina, afrekskylfingana okkar og margt fleira. Áskrifendur Morgunblaðsins geta nálgast viðtalið í heild sinni með því að smella á tengilinn hér að neðan. Golfáhugi Íslendinga engu líkur Tengdar fréttir Dagmál Skelfileg staða og engar aðgerðir Fara á örorku og upplifa sjálfsvígshugsanir „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Trufflan er ýmist elskuð og hötuð Þjálfunaraðstaða lögreglu stenst ekki samanburð » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Skrifuðu undir samning í Keflavík 65% aukning frá 2019 í golfinu Fyrirliði Chelsea óvænt hættur í fótbolta 100 manns flutt frá bænum síðan PCC fór Tveir stungnir með hnífi í London Umræðan Hafnarfjörður er fyrir fólk – ekki kerfi eða fjármagn Fólk geti eignast þak yfir höfuðið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert „Hvað ætla þeir með okkur?“ Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Gölluð tillaga sem byggist á misskilningi Herjólfur bilaður og höfnin lokuð Atli og Sunna nýir fréttastjórar Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Alvarleg stunguárás í heimahúsi í Árbæ Kristrún vill sjálf dæma Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Nýjast á mbl.is » Skrifuðu undir samning í Keflavík 65% aukning frá 2019 í golfinu Fyrirliði Chelsea óvænt hættur í fótbolta 100 manns flutt frá bænum síðan PCC fór Tveir stungnir með hnífi í London Umræðan Hafnarfjörður er fyrir fólk – ekki kerfi eða fjármagn Fólk geti eignast þak yfir höfuðið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ríkisstjórnin bregst við stöðu samgangna til Eyja Áhrif olíuverðhækkana koma þungt fram Icelandair tapaði 5,6 milljörðum „Hvað ætla þeir með okkur?“ Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Gölluð tillaga sem byggist á misskilningi Herjólfur bilaður og höfnin lokuð Atli og Sunna nýir fréttastjórar Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Alvarleg stunguárás í heimahúsi í Árbæ Kristrún vill sjálf dæma Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“