Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Vilja þjóðarleikvang fyrir golfið

Read Full Article →

Innlent | mbl | 30.4.2026 | 21:24 Vilja þjóðarleikvang fyrir golfið Eggert Skúlason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Dagmál 65% aukning frá 2019 í golfinu Skelfileg staða og engar aðgerðir Fara á örorku og upplifa sjálfsvígshugsanir „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Trufflan er ýmist elskuð og hötuð » Fleiri tengdar fréttir Undirbúningurinn er hafinn fyrir þjóðarleikvang fyrir golfíþróttina. Forseti GSÍ, Hulda Bjarnadóttir staðfestir að formlega samtöl hafa átt sér stað við tvö sveitarfélög. Það eru Akranes og Hafnarfjörður. Verkefnið er af þeirri stærðargráðu að nauðsynlegt er að eiga samstarf um það við sveitarfélag og ríkið. Hulda er gestur Dagmála Morgunblaðsins í dag Þjóðarleikvangur miðar að því að standa undir kröfum sem gerðar eru til alþjóðlegra stórmóta á borð við PGA og LPGA mótaraðirnar, sem eru hæsta stig golfíþróttarinnar, að áliti margra. Hvenær fáum við eitt slíkt mót til Íslands? Hulda minnir á að Ísland hafi í tvígang tekið á móti og haldið Evrópumót stúlkna. Líkast til þurfi aðeins lengri velli í karlamótin á hæsta stigi. „Þess vegna þurfum við sveitarfélögin með okkur í lið upp á það að búa til alþjóðlega keppnisvelli,“ segir forsetinn. Hún telur þó líkur á og styttra í að Ísland geti tekið við slíkum mótum í kvennaflokki. „Við látum okkur dreyma um það. En kostun á svona mótum er samt alveg stundum út úr korti, miðað við þær fjárhæðir sem við erum að takast á við. Við erum byrjuð að undirbúa þetta, af því að þú spyrð.“ Eftir þing Golfsambandsins í nóvember síðastliðnum var farið að undirbúa aðdraganda að þjóðarleikvangi og leitaði GSÍ til verkfræðistofunnar VSB um að vinna fyrir sig gögn um þjóðarleikvang. „Af því að það er ótrúleg bið eftir þjóðarhöll og þjóðarleikvangi í íþróttum. Þannig að við fórum að hugsa hvernig ætlum við að taka þátt í þessu samtali, sem þú ert að spyrja mig að. Hvenær verður alþjóðleg keppni tekin upp um deild hér heima á Íslandi. Við þurfum þá allavega að vera tilbúin með okkar eigin gögn og vera tilbúin með það. Við erum tilbúin með stigskiptingu keppnisvalla. Við erum núna komin með teikningar að þjóðarleikvangi og erum búin að vera að fara og hitta sveitarfélög og segja, viljið þið vera með okkur í að byggja upp næsta þjóðarleikvang? Það væri hægt að teikna hann upp þannig að það væri hægt að taka á móti alþjóðlegum keppnum.“ Samtöl við Akranes og Hafnarfjörð Þegar Hulda er spurð hvar slíkur völlur gæti risið þá segist hún geta sagt frá því að samtal hefur átt sér stað við íþróttabæinn Akranes sem bauð upp á samtal um þetta. Hún nefnir líka Hafnarfjörð sem íþróttabæ og segir að þar hafi líka átt sér stað samtal um þetta verkefni. Hún bendir á að þar sé hafinn undirbúningur að uppbyggingu á 27 holu velli. „Þannig að það er spurning. Á þjóðarleikvangurinn að koma þar eða ætlum við að finna aðrar staðsetningar og það eru vissulega til aðrar staðsetningar. En við erum að kalla eftir þessum samtölum núna. Við erum með gögnin og við erum tilbúin í samtalið.“ Einkaaðilar hafa sýnt aukinn áhuga á golfi og þeim möguleikum sem þar er að finna. „Það sem er svo spennandi, að eftir að við komum fram, eftir golfþingið í nóvember að alls kyns fjárfestar eru farnir að hafa samband.“ Hulda bendir á að það sé að renna upp fyrir svo mörgum að tekjuöflun fylgir golfvöllum. Ólíkt því sem er með sundlaugar, sem dæmi að slík mannvirki kalla á kostnað á með golfvellir búa til umtalsverðar tekjur. Í því samhengi má benda á skýrslu KPMG sem nýverið komið út þar sem efnahagsspor golfsins er reiknað upp á 11,7 milljarða. „Við erum almenningsíþrótt, við erum fjölnota útivistarsvæði og við getum líka búið til tekjur. Hver vill með vinna með okkur? Það eru fleiri og fleiri að koma að samtalinu, en við erum líka að halda öllu galopnu. Til að það verði þjóðarleikvangur þá þurfum við sveitarfélag til samstarfs, fyrst og fremst og þyrfti þá að vera samtal við ríkið ofan á það. Við erum bara bjartsýn því okkur langar auðvitað að fara að geta boðið hér alþjóðleg golfmót og staðist allar kröfur og væntingar sem í dag eru gerðar,“ upplýsir Hulda. Áskrifendur Morgunblaðsins geta horft á viðtalið við Huldu Bjarnadóttur í heild sinni með því að smella á linkinn hér að neðan. Golfáhugi Íslendinga engu líkur Tengdar fréttir Dagmál 65% aukning frá 2019 í golfinu Skelfileg staða og engar aðgerðir Fara á örorku og upplifa sjálfsvígshugsanir „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Trufflan er ýmist elskuð og hötuð » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Vilja þjóðarleikvang fyrir golfið Lundúnaliðið í toppmálum Forest yfir í einvígi ensku liðanna Sektaður fyrir að skoða myndskeið undir stýri Rannsaka innbrot á leikskóla í miðborginni Umræðan Reykjavíkurvæðing Kópavogs Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki „Legið fyrir í nokkurn tíma að ég er að verða 72 ára“ Sameiningar standa ekki fyrir dyrum Vinna við umönnun barna en ná ekki að sjá um sín eigin Mest lesið Í gær Í vikunni Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Unnu í raun í Víkingalottóinu Banaslys í Skorradalsvatni Blikur á lofti hjá hótelum Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir „Ég segi nei“ Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Strandabyggð: Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys Nýjast á mbl.is » Vilja þjóðarleikvang fyrir golfið Lundúnaliðið í toppmálum Forest yfir í einvígi ensku liðanna Sektaður fyrir að skoða myndskeið undir stýri Rannsaka innbrot á leikskóla í miðborginni Umræðan Reykjavíkurvæðing Kópavogs Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Svartur blettur á jafnréttisparadísinni Íslandi Biðu ekki boðanna og níddust á samfélaginu Eru tilbúin og þyrstir í að komast heim Mest lesið Í gær Í vikunni Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Unnu í raun í Víkingalottóinu Banaslys í Skorradalsvatni Blikur á lofti hjá hótelum Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir „Ég segi nei“ Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Strandabyggð: Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys

Share this article