Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Fæstir fatta hvað þetta verður stórt

Read Full Article →

Innlent | mbl | 6.5.2026 | 19:50 Fæstir fatta hvað þetta verður stórt Eggert Skúlason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Dagmál Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Vilja þjóðarleikvang fyrir golfið 65% aukning frá 2019 í golfinu Skelfileg staða og engar aðgerðir Fara á örorku og upplifa sjálfsvígshugsanir » Fleiri tengdar fréttir „Ég held að fæstir séu búnir að átta sig á því hvað þetta verður stórt,“ segir Stefán Gunnarsson, forstjóri GJ Travel á Íslandi þegar hann horfir til sólmyrkvans á Íslandi í sumar. Hann er gestur Dagmála Morgunblaðsins í dag ásamt öðrum stjórnarmanni í Samtökum ferðaþjónustunnar, sem er Ragnhildur Ágústsdóttir, einn stofnenda Lavashow. „Þetta verður risastórt,“ bætir Ragnhildur við og heldur áfram. „Þetta er tólfta ágúst, á háönn ferðaþjónustunnar nú þegar. Það er alltaf mikið af fólki á þessum tíma. Það hefði eiginlega verið miklu betra ef þetta hefði verið núna í maí,“ hlær hún. Verður álag á innviði Þegar þau eru spurð um hversu stórt þetta verði þá svarar Stefán því til að hann hafi aldrei upplifað fullan sólmyrkva áður. „Það var fullur sólmyrkvi í Bandaríkjunum fyrir nokkrum árum. Þar eru menn náttúrulega með tvíbreiðar hraðbrautir til og frá og út um allt. En það var þannig að fólk lagði á sig að keyra í sex klukkutíma á staðinn en svo var það í tólf fjórtán tíma á leiðinni til baka. Það var allt í sultu. Við erum að fara að keyra þetta hérna á einbreiðum vegum. Þetta verður mjög sýnilegt á Snæfellsnesi, sunnanverðum Vestfjörðum og Látrabjargi. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvers konar ástand verður,“ segir Stefán. Þau benda líka á að vissulega sjáist sólmyrkvinn frá Reykjanesi og Reykjavík þannig að fólk getur horft á þetta heiman frá sér á höfuðborgarsvæðinu. Ragnhildur segir að fjölmargir elti sólmyrkva út um allan heim og vitnar þar til Stjörnu-Sævars, eða Sævars Helga Bragasonar sem er manna fróðastur um sólmyrkva og hefur eftir því sem Ragnhildur kemst næst upplifað fjóra slíka. „Hann talar um þetta sem eitthvað það ótrúlegasta sem þú getur upplifað. Við erum búin að sjá það nánast í heilt ár að akkúrat dagana í kringum sólmyrkvann þá er hér um bil ekki hægt að panta gistingu. Það er bara allt orðið uppbókað fyrir löngu, löngu síðan. Þannig að fólk hefur vit á því sem kannski stundar þetta og eltir þetta að panta fyrir töluvert löngu síðan. Svo er kannski miklu meira laust í lok júlí.“ Ragnhildur og Stefán segja að sólmyrkvinn muni sjást frá Reykjanesi og Reykjavík þannig að fólk muni geta horft heiman frá sér á höfuðborgarsvæðinu. mbl.is/RAX Allt flug uppselt Stefán grípur þennan bolta. „Ég held að stærsti flöskuhálsinn sé náttúrulega að allt flug í kringum þessa daga er löngu uppselt. Það er ekki einn kollur laus í flugvél hjá Icelandair á þessum tíma.“ GJ Travel, sem Stefán stýrir hafði vaðið fyrir neðan sig og pantaði gistingar og nauðsynlega aðstöðu með löngum fyrirvara. Fyrirtækið er fimmtán skipulagðar, nokkurra daga ferðir í kringum sólmyrkvann og hafa pantað eitt stærsta hvalaskoðunarskip Íslands fyrir sína viðskiptavini. „Við höfðum vit á því að panta hótelrými vítt og breitt hér á Vesturlandi með mjög löngum fyrirvara. Þannig að við erum alveg að taka okkar hluta af kökunni svona eins og við getum en við hefðum getað selt mikið meira. Við fórum eins hátt og eins langt eins og við töldum okkur geta gert með góðu móti,“ upplýsir Stefán. Þau Ragnhildur Ágústsdóttir og Stefán Gunnarsson eru gestir Dagmála í dag og áskrifendur geta horft á viðtalið við þau í heild sinni, með því að smella á linkinn hér að neðan. Gott útlit í sumar en óvissa í vetur Tengdar fréttir Dagmál Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Vilja þjóðarleikvang fyrir golfið 65% aukning frá 2019 í golfinu Skelfileg staða og engar aðgerðir Fara á örorku og upplifa sjálfsvígshugsanir » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Grindavík - Valur, staðan er 12:17 Bayern München - París SG, staðan er 0:1 Biðla til sendiráða að flytja starfsfólk frá Kænugarði Tindastóll í úrslit eftir þriðja sigurinn í röð Elvar öflugur í Póllandi Umræðan Bókhaldsblekkingar í boði bæjarstjóra Gagnsæi og samkeppni þegar kemur að opinberum innkaupum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Telja sig vera nálægt samkomulagi við Íran Íslenski skálinn opnaður: „Ég er pínu meyr“ Trump hótar harðari árásum náist ekki samkomulag Eldur í mannlausri rútu Mest lesið Í gær Í vikunni Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Andlát: Sigfús Pétursson frá Álftagerði Hætta er á 57 milljarða framúrkeyrslu Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu ESB-ferlið hófst strax 2025 Umfangsmikið „leynimakk“ kom á óvart Þóra og RÚV sýknuð Augljóst að upplýsingum er haldið frá þjóðinni Andlát: Sigrún Guðjónsdóttir Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Enn eitt dæmi um gullhúðun Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Kaffihúsum Kaffitárs verður lokað Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Nýjast á mbl.is » Grindavík - Valur, staðan er 12:17 Bayern München - París SG, staðan er 0:1 Biðla til sendiráða að flytja starfsfólk frá Kænugarði Tindastóll í úrslit eftir þriðja sigurinn í röð Elvar öflugur í Póllandi Umræðan Bókhaldsblekkingar í boði bæjarstjóra Gagnsæi og samkeppni þegar kemur að opinberum innkaupum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mistök en gagnrýnin stendur Þrír sjúklingar fluttir á brott: Læknar á leiðinni Trump hótar harðari árásum náist ekki samkomulag Óháð úttekt á fréttamennsku RÚV Mest lesið Í gær Í vikunni Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Andlát: Sigfús Pétursson frá Álftagerði Hætta er á 57 milljarða framúrkeyrslu Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu ESB-ferlið hófst strax 2025 Umfangsmikið „leynimakk“ kom á óvart Þóra og RÚV sýknuð Augljóst að upplýsingum er haldið frá þjóðinni Andlát: Sigrún Guðjónsdóttir Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Enn eitt dæmi um gullhúðun Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Kaffihúsum Kaffitárs verður lokað Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda

Share this article