Stór hluti landsmanna spilar golf og fer þeim sífellt fjölgandi. Samkvæmt úttekt KPMG léku 29.370 kylfingar á golfvöllum um allt land í fyrra og fjölgaði þeim um 11,5% milli áranna 2024 og 2025. Iðkendum hefur fjölgað hratt frá árinu 2019, eða um 65%. Samhliða aukningunni hafa tekjur hreyfingarinnar aukist. Tekjur golfklúbba á Íslandi hafa aukist ár frá ári en heildartekjur samkvæmt greiningu KPMG námu tæplega 5 milljörðum króna árið 2024, sem er 13% aukning milli ára. Tekjur byrjuðu að aukast hratt árið 2019 en þær hækkuðu um 67% milli 2019 og 2024. Frá árinu 2003 hafa þær aukist um 576%. Tekjur af golfhermum og æfingasvæðum hafa sömuleiðis aukist á síðustu árum en þær námu ríflega hálfum milljarði króna árið 2024. Í tilviki golfherma hafa tekjurnar þrefaldast frá árinu 2021 en þær námu 328 milljónum árið 2024. Mest hefur aukningin verið í golfhermum einkaaðila utan klúbba, þar sem tekjur fóru úr 44 milljónum 2021 í 223 milljónir árið 2024. Hvað æfingasvæðin varðar varð mikil aukning milli 2023 og 2024, þegar tekjur fóru úr 141 milljón í 192 milljónir. Golfverslanir hafa einnig fundið fyrir mikilli tekjuaukningu. Frá árinu 2020 hafa tekjurnar margfaldast en mikið stökk var milli 2020 og 2020 þar sem tekjur jukust um 83%, fóru úr tæplega 1,1 milljarði í tæpa 2 milljarða. Árið 2024 námu tekjur golfverslana fjórum milljörðum króna. Loks skila golfferðir talsverðum tekjum. Samkvæmt greiningunni má gróflega áætla að um átta þúsund kylfingar fari með íslenskum ferðaskrifstofum í golfferðir á ári. Miðað við meðalverð upp á 350 þúsund krónur má ætla að tekjur ferðaskrifstofanna nemi á bilinu 2,5-2,8 milljörðum króna. Er það fyrir utan kylfinga sem bóka golfferðir án milliliða. Þegar allt er tekið til sést að golfhreyfingin skilar um 12 milljörðum króna í tekjur árlega. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .