- What: Football match result between Breiðablik and FH
- Impact: Sports news for fans of Icelandic women's football
Breiðablik er meistari meistaranna í fótbolta kvenna eftir 3-1 sigur gegn FH. Blikar leiddu 2-0 í hálfleik og allt leit út fyrir þægilegan sigur þegar þær komust í 3-0. FH hleypti hins vegar spennu í lokamínúturnar með marki. Barbára Sól Gísladóttir kom heimakonum yfir eftir að Elísa Viðarsdóttir fann hana inn í miðjum teignum. Barbára tók boltann á kassann og læddi honum fram hjá Steinunni Ernu Birkisdóttur í markinu. Markið kom á 5. mínútu leiksins. Blikar tvöfölduðu sko forskotið á 26. mínútu er Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir skoraði eftir sendingu Öglu Maríu Albertsdóttur. Breiðablik gerði svo gott sem út um leikinn með þriðja markinu á 57. mínútu. Blikar unnu boltann hátt á vellinum og Hrafnhildur Ása renndi boltanum á Öglu Maríu. Agla María var ekki í miklum erfiðleikum með að koma boltanum í netið af stuttu færi. FH-ingar fengu nokkur ágætis færi í seinni hálfleik. Nia Raisa Christopher í framlínunni fékk þrívegis tækifæri einn á móti markmanni. Í þriðja skiptið gekk það upp hjá henni og hún minnkaði muninn á 79. mínútu. Við birtum mörkin og viðtöl hér innan skamms.