Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Trump segir herinn hafa unnið einstakt afrek við björgun flugmannsins

  • What: News about a military rescue operation
  • Impact: Not related to cybersecurity
Read Full Article →

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir herinn hafa unnið einstakt björgunarafrek í nótt með því að finna hermann úr áhöfn F15 orrustuþotu sem Íranar skutu niður á föstudag . „Við fundum hann,“ skrifaði Trump á Truth Social og sagði manninn heilan á húfi. „Hann meiddist eitthvað, en mun jafna sig,“ skrifaði Trump. Sérsveitir Bandaríkjahers hafa komið manninum heilum á húfi undan í einhverri erfiðustu björgunaraðgerð sögunnar. Trump segist hafa skipað hernum að senda tugi flugvéla búna öflugustu vopnum veraldar til að heimta hermanninn úr helju. Bandarískir miðlar sögðu hinum úr áhöfn orrustuþotunnar hafa verið bjargað á föstudag, þeirrar fyrstu sem Íranir hafa grandað í stríðinu. Trump sagði þetta í fyrsta sinn í manna minnum að tveimur bandarískum flugmönnum hefði verið bjargað frá óvinasvæði, hvorum í sinni aðgerðinni, án þess að nokkur Bandaríkjamaður færist eða særðist. Talsmaður Bandaríkjastjórnar sagði fyrir stundu að björgunaraðgerðir standi enn yfir og markmiðið sé að koma flugmanninum brott frá Íran. Bandaríkjamenn og Íranar kepptust um að hafa uppi á honum og írönsk stjórnvöld hétu hárri umbun til hvers þess sem finndi hann. Tíðindi af björgunaraðgerðunum voru upphaflega harla óljós, meðal annars sagði al-Jazeera hafa komið til skotbardaga áður en sérsveitir Bandaríkjahers fundu hermanninn.

Share this article