Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Emmessís jók hagnað og veltu

Read Full Article →

Emmessís hagnaðist um 196 milljónir króna eftir skatta á árinu 2025, samanborið við rúmlega 129 milljóna hagnað árið áður. Stjórn félagsins lagði til að greiddur verði 300 milljóna króna arður til hluthafa á árinu 2026 vegna rekstrarársins 2025, að því er kemur fram í ársreikningi félagsins. Rekstrartekjur Emessíss jukust um 12% milli ára og námu 2.089 milljónum króna. Rekstrargjöld námu 1.838 milljónum en þar af voru laun og tengd gjöld 456 milljónir. Ársverk voru 36 rétt eins og árið áður. Rekstrarhagnaður ísgerðarinnar fyrir afskriftir (EBITDA) jókst um 28% milli ára, úr 235 milljónum í 301 milljón. „Rekstur félagsins var í samræmi við áætlanir ársins. Veðurfar hefur mikil áhrif á eftirspurn eftir vörum félagsins og milt sumar hafði jákvæð áhrif á niðurstöðu ársins. Öflug vöruþróun skilaði jákvæðum niðurstöðum sem gefur stjórnendum góð fyrirheit um áframhaldandi árangur næstu misseri. Afrakstur gæðastarfs gerir félaginu kleift að viðhalda gæðavottunum sem ætlað er að hámarka upplifun neytenda af vörum félagsins. Vöruþróun og gæðastarf spila lykilhlutverk í stöðugum umbótum sem saman leggja grunn að matvælaöryggismenningu til lengri tíma,“ segir í skýrslu stjórnar í ársreikningi félagsins. Þar er jafnframt greint frá því að Emmessís áformi flutninga í nýtt húsnæði í Fossaleyni í Grafarvogi í lok þessa árs. Höfuðstöðvar félagsins hafa um áratugaskeið verið til húsa að Bitruhálsi 1. „Eigendur sem og stjórnendur hafa væntingar um að nýtt og sérhannað húsnæði feli í sér tækifæri til sóknar á næstu árum.“ Eignir félagsins námu 1.022 milljónum króna í árslok 2025 og eigið fé var um 723 milljónir. Emmessís er í eigu Nathan samstæðunnar (áður 1912), sem er í eigu Ara, Bjargar og Kristínar Fenger og fjölskyldu.

Share this article